Besti flokkurinn með hreinan meirihluta Sigríður Mogensen skrifar 21. maí 2010 18:30
Besti flokkurinn fær hreinan meirihluta í borgarstjórn Reykjavíkur, 8 kjörna fulltrúa af fimmtán, samkvæmt nýrri könnun Fréttablaðsins og Stöðvar 2, en rúm vika er í kosningar. Framsóknarflokkurinn mælist með 2,7% fylgi og kemur engum inn. Sjálfstæðisflokkurinn tapar tæpum níu prósentustigum - mælist nú með þrjá borgarfulltrúa, en þeir voru fimm í síðustu könnun. Reykjavíkurframboðið, H-listi Ólafs F. Magnússonar og Frjálslyndi flokkurinn mælast með um hálft prósentustig. Samfylkingin tapar einum manni frá síðustu könnun og fær þrjá borgarfulltrúa, mælist með jafnt fylgi og Sjálfstæðisflokkurinn. Vinstri grænir tapa sjö prósentustigum frá síðustu könnun og koma einum manni inn. Besti flokkurinn mælist með 44 prósenta fylgi , fær 8 menn. Fylgi hans tvöfaldast frá síðustu könnun Fréttablaðsins og Stöðvar 2, þegar hann mældist með fjóra borgarfulltrúa. Hringt var í 800 manns í gærkvöldi eftir slembiúrtaki og tóku 69 prósent afstöðu til spurningarinnar um hvaða lista fólk myndi kjósa ef kosið yrði nú. Færri eru óákveðnir en í síðustu könnun, en þá tóku 59 prósent afstöðu. Besti flokkurinn er miðað við könnunina nú orðinn lang stærsta stjórnmálaaflið í borginni með hreinan meirihluta. Hann bætir við sig á kostnað stóru flokkanna og mælist með meira fylgi en Samfylkingin og Sjálfstæðisflokkurinn til samans.
Kosningar 2010 Mest lesið Hildi og Inga Þór sagt upp Innlent Afkomendur síðasta böðuls á Íslandi búa enn á Illugastöðum Innlent Kattahland og skítur á gólfum og upp eftir veggjum Innlent Munda fallbyssurnar við landamærin Erlent Telur starfsmenn hæfa til að meta stjórnsýslu yfirmanns síns Innlent Meirihluti atkvæða talinn en enginn með þingmeirihluta Erlent Opinberuðu lögbrot í kjúklingabúi með falinni myndavél Erlent Ted Bundy tengdur við 52 ára gamalt óleyst morð Erlent Tvær lægðir á leiðinni Veður Tekur við Bolsonaro opnum örmum Erlent Fleiri fréttir Bein útsending: Loftslagsdagurinn 2026 - Loftslagsbreytingar og öryggi Telur starfsmenn hæfa til að meta stjórnsýslu yfirmanns síns Kattahland og skítur á gólfum og upp eftir veggjum Afkomendur síðasta böðuls á Íslandi búa enn á Illugastöðum Haft áhrif með því að „standa í lappirnar gagnvart tæknirisunum“ Hildi og Inga Þór sagt upp „Skorið niður til þess eins að skera niður“ Engar vísbendingar fundist en formlegri leit lokið Sveinn R. Eyjólfsson er látinn Féll úr stiga í vinnunni og hlaut höfuðhögg „Ég geri ekki athugasemd við það að þetta símtal hafi átt sér stað“ Ekkert bendi til þess að eldgosahrinunni sé að ljúka „Galin vinnubrögð“ Þyrlan kölluð til: Maðurinn fannst heill á húfi „Hrikalegt högg“ Engin ástæða til að hamla för Portúgalsfarans lengur „Fyrst og fremst erfitt“ Hildur svaraði fyrir uppsagnirnar Nota rústamyndavél við leit að Lúðvík Fækka um rúmlega sjötíu stöðugildi Húðflúr á hálsi kom upp um síbrotamann „Íbúar gera það ekki að leik sínum að panta flug á síðustu stundu“ Ríkisstjórnin samþykkir frumvarp ráðherra um herta innflytjendalöggjöf Segir Íslendinga á tímamótum og verða að bregðast við Sjötíu ákærðir fyrir svíkja fé út úr Landsbankanum Sorg hjá borgarstarfsmönnum og leitaraðgerð í Grindavík Gefur meirihlutanum falleinkunn Hætta skapaðist eftir að límt var fyrir linsu hraðamyndavélar „Ljóst að þetta snýst um rekstur borgarinnar“ Markmið að kanna aðstæður en ekki björgun Sjá meira