Hildi og Inga Þór sagt upp Áróra L Davíðsdóttir skrifar 27. október 2026 21:54 Facebook/Reykjavíkurborg Hildur Lillendahl Viggósdóttir verkefnastjóra var ein þeirra sem var sagt upp störfum hjá Reykjavíkurborg í dag eftir átján ár í starfi. Þá var Inga Þór Jónssyni, verkefnastjóra á skrifstofu menningarborgar, einnig sagt upp störfum. „
Á meðan ég var í flugi fékk ég fundarboð, sem ég eðlilega sá ekki, og í rúllustiga á flugvelli á leið í lest fékk ég uppsagnarbréf frá Reykjavíkurborg á ísland punktur is,“ skrifar Hildur í Facebook-færslu. Hún sem starfaði sem verkefnastjóri kosninga á skrifstofu borgarstjórnar. Í morgun hafi hún setið á Keflavíkurflugvelli á leið sinni heim úr fjögurra daga ferð og séð fréttir um „leynifund“ í Ráðhúsinu. Hún hafi sent á skrifstofuna og spurt hvað væri í gangi en engin svör hafi borist fyrr en henni barst póstur frá yfirmanni sínum um að henni byðist sálfræðiaðstoð en enn væri óskað eftir frekara vinnuframlagi hennar. „Ég veit ekki alveg hvað ég á að segja. Átján og hálft ár. Ég hef sinnt starfinu mínu af svo ógeðslega mikilli samviskusemi og metnaði að stundum hefur mér fundist ég ganga alltof langt og fram af sjálfri mér,“ skrifar Hildur. „Mér hefði þótt örlítið meiri sómi af því að kannski þakka mér fyrir þessa tæpu tvo áratugi eða... eða bara eitthvað. En svona er þetta.“ „Lélegasta afmælisgjöf allra tíma“ Ólympíufaranum Inga Þór Jónssyni var sagt upp störfum í dag og greindi frá starfslokunum á Facebook. „Lélegasta afmælisgjöf allra tíma, rekinn úr starfi hjá Reykjavíkurborg frá og með 1.1,“ skrifar hann. Hann starfaði sem verkefnastjóri viðburða og markaðs hjá Fjölskyldugarðinum. Starfið í Fjölskyldugarðinum er ekki það fyrsta sem Ingi sinnir hjá borginni en hann var viðburðastjóri í Ráðhúsinu og vann á skrifstofu borgarstjóra í tíð Jóns Gnarr.
Borgarstjórn Reykjavík Mest lesið Aukafundur borgarfulltrúa: Tugir stöðugilda í nýrri hrinu uppsagna og niðurskurðar Innlent Hildur svaraði fyrir uppsagnirnar Innlent Hildi og Inga Þór sagt upp Innlent „Ég geri ekki athugasemd við það að þetta símtal hafi átt sér stað“ Innlent Ákærður fyrir að drepa tvo af gáleysi Innlent Sjötíu ákærðir fyrir svíkja fé út úr Landsbankanum Innlent „Galin vinnubrögð“ Innlent Fækka um rúmlega sjötíu stöðugildi Innlent Þyrlan kölluð til: Maðurinn fannst heill á húfi Innlent Gefur meirihlutanum falleinkunn Innlent Fleiri fréttir Haft áhrif með því að „standa í lappirnar gagnvart tæknirisunum“ Hildi og Inga Þór sagt upp „Skorið niður til þess eins að skera niður“ Engar vísbendingar fundist en formlegri leit lokið Sveinn R. Eyjólfsson er látinn Féll úr stiga í vinnunni og hlaut höfuðhögg „Ég geri ekki athugasemd við það að þetta símtal hafi átt sér stað“ Ekkert bendi til þess að eldgosahrinunni sé að ljúka „Galin vinnubrögð“ Þyrlan kölluð til: Maðurinn fannst heill á húfi „Hrikalegt högg“ Engin ástæða til að hamla för Portúgalsfarans lengur „Fyrst og fremst erfitt“ Hildur svaraði fyrir uppsagnirnar Nota rústamyndavél við leit að Lúðvík Fækka um rúmlega sjötíu stöðugildi Húðflúr á hálsi kom upp um síbrotamann „Íbúar gera það ekki að leik sínum að panta flug á síðustu stundu“ Ríkisstjórnin samþykkir frumvarp ráðherra um herta innflytjendalöggjöf Segir Íslendinga á tímamótum og verða að bregðast við Sjötíu ákærðir fyrir svíkja fé út úr Landsbankanum Sorg hjá borgarstarfsmönnum og leitaraðgerð í Grindavík Gefur meirihlutanum falleinkunn Hætta skapaðist eftir að límt var fyrir linsu hraðamyndavélar „Ljóst að þetta snýst um rekstur borgarinnar“ Markmið að kanna aðstæður en ekki björgun Ákærður fyrir að drepa tvo af gáleysi Fjörutíu föngum fylgt úr landi fyrstu níu mánuði ársins Aukafundur borgarfulltrúa: Tugir stöðugilda í nýrri hrinu uppsagna og niðurskurðar „Von okkar er að lík Lúlla finnist og við getum jarðað hann“ Sjá meira