Birgir Leifur er í 9.-12. sæti þegar keppni er hálfnuð á úrtökumótinu á Spáni Sigurður Elvar Þórólfsson skrifar 27. nóvember 2010 18:01 Birgir Leifur Hafþórsson, Íslandsmeistari í höggleik og holukeppni 2010. Mynd/Daníel
Birgir Leifur Hafþórsson atvinnukylfingur úr GKG bætti stöðu sína á úrtökumótinu fyrir Evrópumótaröðina í golfi með því að leika á 74 höggum í dag. Birgir er samtals á pari vallar eftir 36 holur en hann lék á 70 höggum í gær eða -2. Birgir er í 9. -12. sæti af alls 80 kylfingum en um 20 kylfingar komast áfram af þessum keppnisvelli á lokaúrtökumótið. Íslandsmeistarinn leikur á Arcos Garden vellinum á Spáni þar sem að einn af fjórum riðlum á 2. stigi úrtökumótsins fer fram. Skor keppenda á öðrum hringnum í dag var mun lakara en í gær og er Birgir aðeins fjórum höggum frá efsta sætinu. Frakkinn Christophe Brazillier er efstur á -4. Aðeins þrír kylfingar af alls 80 náðu að leika undir pari vallar í dag á öðrum hringnum.
Golf Mest lesið Segir að sigurkarfa Elvars hafi verið ólögleg Körfubolti Vinkonur og liðsfélagar létust á leið heim af æfingu Sport Skellur fyrir bankabók HSÍ Handbolti Allir sem hylji munninn verði reknir út af Fótbolti Litáen - Ísland | Verður ævintýrið endurtekið á útivelli? Körfubolti Liverpool rak sérfræðinginn sinn og þá fór allt að gerast Enski boltinn Roy Keane næstum búinn að skemma feril Heimis Fótbolti Ældi svakalega á völlinn en hélt svo áfram að spila Enski boltinn Sara og fjölskylda örugg en staðan hræðir Fótbolti „Ég hef bara miklar áhyggjur af þessu“ Enski boltinn Fleiri fréttir Logi fékk örn eftir að hafa slegið beint í holu af 76 metra færi Gunnlaugur semur við umboðsskrifstofu Schefflers Atvinnukylfingur féll niður um lyftustokk Rory McIlroy: „Fjögur risamót er alveg nóg“ LIV fær heimslistastig þótt mótaröðin uppfylli ekki skilyrði Sjá meira