Handbolti

Arnór Snær: „Því­líka veislan“

Sindri Sverrisson skrifar
Arnór Snær Óskarsson naut sín í botn í kvöld.
Arnór Snær Óskarsson naut sín í botn í kvöld. VÍSIR / DIEGO

„Þvílíka veislan. Alltaf gaman að spila Evrópuleiki hérna á Hlíðarenda þegar dúkurinn kemur, bongó og stúkan tryllist,“ sagði Arnór Snær Óskarsson, skytta Vals, kampakátur eftir kröftugan sigur á Tatabánya í þriðju umferð Evrópudeildarinnar. Valsmenn á toppi síns riðils með fjögur stig.

Arnór Snær var fyrst spurður út í heimavöllinn, en þetta er annar sigur liðsins á heimavelli í keppninni og báðir leikir unnist nokkuð örugglega.

„Menn koma aðeins meira gíraðir inn í Evrópudeildina. Það er eitthvað annað að gíra sig upp fyrir dúkinn og fulla stúku. Við komum bara vel innstilltir og erum vel undirbúnir. Við skulduðum smá frá síðasta Evrópuleik. Geggjað að búa til gryfju hér og vonandi að fara ósigraðir í gegnum heimavöllinn.“

Arnór Snær segir gestina frá Ungverjalandi hafa lítið komið á óvart í leiknum og góður undirbúningur Valsara komið sér vel.

„Við bjuggumst við þessu frá þeim. Öll kerfin sem við vorum búnir að fara yfir spiluðu þeir, ekkert nýtt frá þeim. Mér fannst við bara þéttir og flottir í vörninni, lákum kannski nokkrum í fyrri þegar hendin var komin upp. Annars voru þeir hægir til baka og þá nýtist okkar kraftur.“

Mikil keyrsla er á Valsmönnum vegna þátttöku þeirra í Evrópudeildinni. Næstu tveir leikir liðsins í keppninni eru útileikir. Arnór Snær er þó ánægður með leikjaálagið, því æfingaálagið er lítið á meðan.

„Þeir eru ungir og ferskir með okkur og við viljum bara spila leiki. Það er fínt að æfa lítið og bara spila, þetta er draumurinn.“




Fleiri fréttir

Sjá meira


×