Þetta kemur fram í ítarlegri umfjöllun um málið í Jyllands Posten. Þar segir að IKEA hafi þegar náð 28% hlutdeild á danska markaðinum og sú hlutdeild á að aukast í ár.
Húsgagnasala í heild dróst saman um 20% á síðasta ári í Danmörku. IKEA náði hinsvegar að auka sölu sína á árinu um litlar 5 miljónir danskra kr. og endaði hún í heild í 2,5 milljörðum danskra kr. eða tæplega 48 milljörðum kr.
Håkan Svedman forstjóri IKEA í Danmörku segir að áætlanir þeirra geri ráð fyrir að salan muni aukast um 15% á þessu ári. „Við áttum gott ár í fyrra og það styrkir okkur í trúnni að hægt sé að ná þessari söluaukningu í ár," segir Svedman.
IKEA opnaði stórt vöruhús í Óðinsvéum í nóvember s.l. og ætlar að opna annað slíkt í Álaborg í næsta mánuði. Þar með rekur IKEA fimm stór vöruhús í landinu og Svedman telur að það sé pláss fyrir það sjötta. Hann segir slíkt nú til skoðunnar hjá IKEA.