Kaka: Ég er ekki búinn að vera ánægður með spilamennsku mína Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 27. apríl 2010 22:30 Kaka fagnar sigurmarki sínu um síðustu helgi. Mynd/AFP
Brasilíumaðurinn Kaka er kominn aftur af stað með Real Madrid eftir að hafa verið meiddur í mánuð og byrjaði á því að tryggja Real-liðinu mikilvægan sigur eftir að hafa komið inn á sem varamaður um síðustu helgi. „Ég er ekki búinn að vera ánægður með spilamennsku mína á þessu tímabili en aðalvandamálið hefur verið líkamlegi þátturinn. Ég er búinn að vera slæmur í skrokknum síðan ég kom hingað," sagði Kaka á blaðamannafundi í dag. „Þegar ég verð betri í skrokknum þá mun spilamennska mín breytast. Ég verð ánægður og þá verða stuðningsmennirnir það líka," sagði Kaka. Kaka er búinn að vera meiddur í mánuð en hann sagðist hafa fyrst meiðst í Meistaradeildarleiknum á móti Lyon þegar franska liðið sló Real Madrid út úr keppni í 16 liða úrslitunum. „Ég fann ekki fyrir neinu í þeim leik. Ég fann ekki fyrir þessu fyrr en ég sparkaði í bolta laugardaginn á eftir," sagði Kaka sem var að glíma við kviðslit. Það var mikið púað á Kaka í Lyon-leiknum enda var hann langt frá sínu besta. Hann segist vera vanur slíkur. „Það var púað á mig í Sao Paulo, í Mílanó og með brasilíska landsliðinu. Allir leikmenn lenda í þessu og meira að segja bestu mennirnir fá að kenna á óánægju stuðningsmannanna þegar illa gengur. Ég veit að ég á eftir að upplifa góða tíma með þessum stuðningsmönnum í framtíðinni," sagði Kaka.
Spænski boltinn Mest lesið Aston Villa í mál við Jamie Carragher Enski boltinn „Á meðan er hann að sofa hjá Ólympíufara í sundi“ Sport „Á stuttum tíma eru mínir nánustu vinir farnir“ Íslenski boltinn Arteta harður við Dowman: „Þetta er ekki Disneyland“ Enski boltinn Styttan af Dwyane Wade fékk nýjan haus Körfubolti Uppgjörið: Grindavík-Njarðvík 104-103 | Pargo með sigurkörfuna Körfubolti „Þessi seinni hálfleikur var það besta sem við höfum gert hingað til” Körfubolti Réttlætanlegt að beita táragasi á norska stuðningsmannahópa Fótbolti „Lið sem enginn vill mæta núna“ Körfubolti Fái að fresta prófum til að spila fyrir Íslands hönd Handbolti Fleiri fréttir Arteta harður við Dowman: „Þetta er ekki Disneyland“ Aston Villa í mál við Jamie Carragher Réttlætanlegt að beita táragasi á norska stuðningsmannahópa Báðir þjálfararnir fengu rautt í hálfleik í toppslagnum Ísak lagði upp sigurmarkið Hætta við áform um Afríkukeppnina í fótbolta Iraola: Því fleiri leiki sem við vinnum, því betri verðum við Hópurinn vilji hafa Carrick áfram Nik Chamberlain rekinn frá Kristianstad „Magnús er þjálfari Aftureldingar og verður það áfram“ Grealish í agabanni hjá Everton Emil Atlason á leið í Fram Áfrýjun Arsenal á rauða spjaldi Dowman hafnað Israel frá Fram „Á stuttum tíma eru mínir nánustu vinir farnir“ „Enski boltinn er annar heimur“ Nýr heimavöllur í Milan mun koma í stað San Siro „Mér þætti það skrýtið ef að allir kölluðu mig Sir“ FIFA hagnaðist um 620 milljarða á miðum á HM-leiki Cristiano Ronaldo með þrennu Víkingar láta Einar Guðna fara Landsliðsmaður í frí hjá félagi sínu vegna persónulegra ástæðna Hallgrímur kveður KA „Ég þarf ekki fullvissu frá neinum“ Viktor Bjarki var í byrjunarliði FCK í öruggum sigri Heimir ráðinn til ÍA og kostaði nokkrar milljónir Var klár í samkeppnina við Ingvar „Eina liðið sem ég vildi ekki“ Flauta Péturs á hilluna Verða án Sesko fram í janúar Sjá meira