Enski boltinn

„Ég þarf ekki full­vissu frá neinum“

Sindri Sverrisson skrifar
Michael Carrick og hans menn þurfa nauðsynlega að svara fyrir sig gegn Chelsea á laugardaginn.
Michael Carrick og hans menn þurfa nauðsynlega að svara fyrir sig gegn Chelsea á laugardaginn. Getty/Dave Howarth

Michael Carrick er þvert á allar spár enn þjálfari Manchester United og hann fór yfir stöðuna á blaðamannafundi í dag, fyrir leikinn við Chelsea í hádeginu á laugardag.

Carrick var yfirvegaður á fundinum og sagði síðustu daga hafa verið nýtta í að skoða hvað fór úrskeiðis í tapinu gegn Bournemouth á sunnudaginn og hvaða breytingar þyrfti að gera fyrir Chelsea-leikinn.

Hávær umræða var um það í byrjun vikunnar að dagar Carrick hjá United væru taldir en eftir fundahöld stjórnenda er hann enn í starfi. Aðspurður hvort að hann hefði fengið fullvissu yfirmanna sinna um að á hann yrði áfram treyst svaraði þjálfarinn:

„Ég þarf ekki fullvissu frá neinum. Ég skil algjörlega stöðuna, hvernig starfið er og hvaða ábyrgð fylgir því. Ég þarf því ekki fullvissu frá öðrum,“ en blaðamannafundinn í heild má sjá hér að neðan.

Klippa: Carrick á blaðamannafundi

Fyrrverandi liðsfélagar Carricks og fleiri hafa verið áberandi í umræðunni um stöðu hans og umræðan hefur vægast sagt verið mikil:

„Ég horfi bara á það sem ég þarf að horfa á. Ég leita ekki eftir þessu og sé það ekki hjálpa neitt. Það sem skiptir mig máli er hvað stuðningsmönnum finnst og hvernig andrúmsloftið er á leikvanginum. Mér er annt um það sem við færum þeim og þeir fá að sjá en ég hugsa ekki um neitt annað. Ég þekki starfið og veit til hvers er ætlast,“ sagði Carrick.

Hann kippti fyrirliðanum Bruno Fernandes út úr byrjunarliðinu eftir að Portúgalinn gagnrýndi taktík United, í viðtali eftir tapið gegn Como í Meistaradeild Evrópu í síðustu viku, en segir allt í góðu þeirra á milli.

„Þetta var ákvörðun sem við tókum út frá því sem við töldum best fyrir leikinn. Ekki flóknara. Bruno leggur sig allan fram fyrir þetta knattspyrnufélag og það eru engin vandamál varðandi það. Við tökum ákvarðanir eftir því sem fram gengur og hlökkum bara til leiksins á laugardaginn.“

Þá greindi Carrick frá því að miðjumaðurinn Kobbie Mainoo væri byrjaður að æfa aftur eftir meiðsli en sagði meiðsli Benjamins Sesko áfall, sérstaklega fyrir leikmanninn sjálfan, en nú er komið í ljós að hann verður frá keppni fram á næsta ár.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×