Í frétt um málið á börsen.dk er haft eftir Giovanni Bisignani forstjóra IATA að um sé að ræða meðalstór og minni flugfélög í álfunni. „Þau eru í hættu á að leggja rekstur sinn af vegna fjárskorts," segir Bisignani.
Samkvæmt útreikningum IATA hefur hver dagur sem askan hefur lokað lofthelgi landa í Evrópu kostað flugfélög í álfunni um 32 milljarða kr. á hverjum degi.
„Flugfélög munu ekki mæta þessu tapi með því að hækka farmiðaverð vegna samkeppninnar," segir Bisignani sem vill að ESB gefi löndum innan sambandsins leyfi til þess að bæta flugfélögunum þann skaða sem þau hafa orðið fyrir.
Framkvæmdastjórn ESB hefur þegar sett á fót vinnuhóp um hvernig hægt sé fyrir stjórnvöld í löndum innan sambandsins að veita flugfélögum ríkisaðstoð. Reynslan frá því sem gerist eftir hryðjuverkaárásina 11. september 2001 verður lögð til grundvallar. Þá fengu evrópsk flugfélög ríkisstyrki í kjölfar þeirrar miklu truflana sem urðu á alþjóðlegri flugumferð.