FIH bankinn danski skilaði hagnaði upp á um 280 milljónir kr. í fyrra eftir skatta. Uppgjör ársins veldur vonbrigðum meðal danskra fjárfesta að því er segir í frétt um málið á börsen,dk.
Góðu fréttirnar í uppgjörinu eru að FIH skilaði hagnaði upp á um 4 milljarða kr. á fjórða ársfjórðungi síðasta árs. Hinsvegar veldur óljóst eignarhald á bankanum honum töluverðum vandræðum.
Eins og margoft hefur komið fram er FIH í íslenskri eigu og raunar á forræði slitastjórnar Kaupþings. Hinsvegar á Seðlabanki Íslands allsherjarveð í bankanum upp á 500 milljónir evra í kjölfar neyðarláns til Kaupþings korteri fyrir hrun þess banka haustið 2008.
Þetta eignarhald, samkvæmt börsen.dk., veldur bankanum nú vandræðúm því hann á í erfiðleikum með að fjármagna skuldbindingar sínar á eftirámarkaði sökum þess.
Fram kemur í uppgjöri ársins að FIH hefur neyðst til að afskrifa 1177 milljónir danskra kr. af lánum sínum eða um 28 milljarða kr. á síðasta ári
Á móti kemur að velheppnuð skuldabréfaútgáfa bankans í Bandaríkjunum í fyrra upp á alls 3,5 milljarða dolla hefur gert það að verkum að eigið fé FIH stendur nú í 22,9 milljörðum danskra kr. eða nær 550 milljarða kr.