Reikna með 100% endurheimtum af umfram Icesavegreiðslum 12. janúar 2010 09:00
Breska fjármálaráðuneytið reiknar með að endurheimta 100% af þeim fjármunum sem bresk stjórnvöld greiddu eigendum Icesave reikninga umfram trygginguna sem sett var á reikningana. Upphæðin sem hér um ræðir nemur um 500 milljón pundum eða rétt rúmlega 100 milljarða kr. Þetta kemur fram á vefsíðunni citywire. Sem kunnugt er hafa bresk stjórnvöld krafist þess að Íslendingar borgi 2,3 milljarða punda vegna Icesave reikninganna í heild en þeir voru tæplega 290.000 talsins. Fjármálráðuneytið gerir einnig kröfu um 1,1 milljarð punda til að bæta upp muninn á bresku tryggingarupphæðinni sem nam 50.000 pundum á móti þeirri evrópsku sem gerði ráð fyrir rúmlega 20.000 evrum á hvern reikning. Á vefsíðunni segir síðan að bresk stjórnvöld geri umdeilda kröfu um að Íslendingar greiði 500 milljónir punda í viðbót til að dekka kostnað breska innistæðutryggingarsjóðsins (FSCS) við að greiða alla Icesavereikningana í Bretlandi upp í topp eða 100%. Ákvörðun um slíkt var tekin af breska fjármálaráðuneytinu í október 2008. Fjármálráðuneytið segir að þessar 500 milljónir punda muni koma frá sölu á eignum Landsbankans í Bretlandi. „Þessar 500 milljónir til að bæta skaða FSCS munu koma úr uppgjöri Landsbankans," segir talsmaður fjármálaráðuneytisins í samtali við citywire. Fram hefur komið hjá FSCS að sjóðurinn hefur þegar borgað út 4,3 milljarða punda vegna Icesave reikninganna og væntir þess að þurfa að borga um 170 milljónir punda í viðbót.
Mest lesið Prakkarastrik loks opinberað: „Það leiðréttist hér með!“ Atvinnulíf Vænta 50 punkta lækkunar en telja 25 punkta líklega Viðskipti innlent Vænta þess að eigendur hússins leysi málið Viðskipti innlent Milla ráðin rekstrarstjóri hjá Ólafi Darra og félögum Viðskipti innlent „Alltaf hægt að sjá tækifæri og fleira gott í stöðunni“ Atvinnulíf Leggja til lagabreytingu sem leysir af penna og pappír Viðskipti innlent Um fimmtíu verið sektuð fyrir að greiða ekki rétt fargjald Neytendur 37,5 milljarðar í hagnað og nítján í arð Viðskipti innlent Birgir hættir hjá Skaga Viðskipti innlent Fólk muni eiga meira eftir í buddunni um mánaðamótin Neytendur Fleiri fréttir Gervigreind fyrir klink veldur Bandaríkjamönnum hausverk Kínversk kúvending leiddi til hruns vestanhafs Enn deila Musk og Altman MrBeast gerir tilboð í TikTok Eftirmaður Norman yfir LIV-mótaröðinni fundinn Höfða mál gegn Musk vegna kaupanna á Twitter Vilja banna farþegum að fá sér þriðja drykkinn á flugvellinum Meta birtir óumbeðnar gervigreindarmyndir af notendum Instagram Biden stöðvar japanska yfirtöku á US Steel Næstum allir nýir bílar í Noregi rafmagnsbílar Sjá meira