Eik Bank tapar 40 milljörðum í Danmörku 15. nóvember 2010 10:06
Eik Bank Denmark, dótturfélag Eik Banki í Færeyjum, mun tapa helmingi af útlánum sínum til fyrirtækja þar í landi eða um 40 milljörðum kr. Alls nema þessi útlán 4,2 miljörðum danskra kr. eða ríflega 80 milljörðum kr. Í frétt um málið á business.dk segir að skilanefnd sú sem bankasýsla Danmerkur skipaði yfir Eik Bank sé nú að fari í gegnum efnahagsreikning bankans til að átta sig á stöðunni. Um er að ræða um 100 fyrirtæki og félög sem bankinn lánaði, einkum til fasteignaverkefna og fjárfestinga í fasteignum. Um er að ræða fyrirtæki sem aðallega eru staðsett í Danmörku en einnig í minna mæli í Þýskalandi, Englandi og Suður-Evrópu. Fram kemur í fréttinni að fyrsta verkefni skilanefndarinnar sé að finna kaupenda að netbanka Eik Bank í Danmörku en þar eru um 70,000 manns með innlánsreikninga. Sá hluti bankastarfsemi Eik Bank er talin traustur og hafa um 20 áhugasamir fjárfestar lýst yfir áhuga sínum á að kaupa netbankann.
Mest lesið Forstjóri SPAR klippti á borðann í Hafnarfirði Viðskipti innlent Feðgin í Firðinum: „Pabbi er besti vinur minn“ Atvinnulíf Þúsund manna hátíðir ekkert mál en ein lítil kónguló skelfileg! Atvinnulíf Icelandair tekur litáíska vél á leigu Viðskipti innlent Samþykktu tíu milljarða arðgreiðslu sama dag og greint var frá uppsögnum Viðskipti innlent Loftslagsgjöldin orðin milljarðakostnaður í þungum rekstri Icelandair Viðskipti innlent Flugvirkjar skora á Icelandair að hverfa frá áformum sínum Viðskipti innlent Alvotech rauk upp eftir tíðindi í morgun Viðskipti innlent Turninn á Lækjartorgi fær nýtt líf Viðskipti innlent Uppsagnir hjá Kviku banka Viðskipti innlent Fleiri fréttir Gervigreindariðnaðurinn: Eru með bensíngjöf en vantar bremsu Hefur hagnast um 7,4 milljónir á mínútu í 31 ár Anthropic nær forskoti í kapphlaupinu gegn OpenAI Ný flaga færir gervigreindina af skýinu Bora eftir jarðhita á Tenerife ESB sektar Temu um 28,7 milljarða króna Meiriháttar truflanir á greiðslumiðlun á Norðurlöndum Verðmætasta fyrirtæki heims slær enn eitt metið Kröfum Musks gegn OpenAI hafnað Hefur „nær engar áhyggjur“ af eldsneytisskorti Einkaþotuflug jókst á sama tíma og eldsneytisverð rauk upp GameStop vill kaupa eBay Einn ríkasti maður Noregs látinn Lággjaldaflugfélagið Spirit Airlines hættir rekstri Ætlar að hækka tolla á bíla frá Evrópu í 25 prósent Sjá meira