Metatvinnuleysi hámenntaðs fólks í Danmörku 16. september 2010 13:47 Frá Strikinu í Kaupmannahöfn.
Metfjöldi hámenntaðs fólks, eins og lögfræðingar og hagfræðingar, skráðu sig atvinnulausa í Danmörku í ágúst s.l. Nú eru 2.424 manns sem teljast hámenntaðir á atvinnuleysisskrá í landinu og hefur fjöldi þeirra ekki verið meiri síðan árið 2003. Í frétt um málið í Politiken segir að það sé einkum ungt fólk sem nýlokið hefur langtímanámi sínu sem fyllir raðir atvinnulausra úr þessum hópi. Politiken ræðir um málið við Rikke Gunnestrup en hún lauk lögfræðinámi sínu í júní s.l. Rikke segir að hún hafi sótt um 15 störf síðan en aldrei komist það langt að fá starfsviðtal á þeim stöðum sem hún sótti um vinnu hjá. „Einu skilaboðin sem ég hef fengið eru að viðkomandi hafi fundið annan starfskraft með meiri reynslu en ég hef," segir Rikke. „Á endanum mun mér takast að fá vinnu en það verður víst ekki draumavinna mín í byrjun." Rikke segir að hún hafi heyrt meðal vina sinna að staðan sé aðeins að breytast til hins betra. Hún er því vongóð en sem stendur er hún með fjórar atvinnuumsóknir í gangi.
Mest lesið Feðgin í Firðinum: „Pabbi er besti vinur minn“ Atvinnulíf Forstjóri SPAR klippti á borðann í Hafnarfirði Viðskipti innlent Þúsund manna hátíðir ekkert mál en ein lítil kónguló skelfileg! Atvinnulíf Icelandair tekur litáíska vél á leigu Viðskipti innlent Samþykktu tíu milljarða arðgreiðslu sama dag og greint var frá uppsögnum Viðskipti innlent Flugvirkjar skora á Icelandair að hverfa frá áformum sínum Viðskipti innlent Loftslagsgjöldin orðin milljarðakostnaður í þungum rekstri Icelandair Viðskipti innlent Alvotech rauk upp eftir tíðindi í morgun Viðskipti innlent Turninn á Lækjartorgi fær nýtt líf Viðskipti innlent Staða Icelandair: „Þetta er hinn kaldi raunveruleiki“ Viðskipti innlent Fleiri fréttir Gervigreindariðnaðurinn: Eru með bensíngjöf en vantar bremsu Hefur hagnast um 7,4 milljónir á mínútu í 31 ár Anthropic nær forskoti í kapphlaupinu gegn OpenAI Ný flaga færir gervigreindina af skýinu Bora eftir jarðhita á Tenerife ESB sektar Temu um 28,7 milljarða króna Meiriháttar truflanir á greiðslumiðlun á Norðurlöndum Verðmætasta fyrirtæki heims slær enn eitt metið Kröfum Musks gegn OpenAI hafnað Hefur „nær engar áhyggjur“ af eldsneytisskorti Einkaþotuflug jókst á sama tíma og eldsneytisverð rauk upp GameStop vill kaupa eBay Einn ríkasti maður Noregs látinn Lággjaldaflugfélagið Spirit Airlines hættir rekstri Ætlar að hækka tolla á bíla frá Evrópu í 25 prósent Sjá meira