Bandaríska dómsmálaráðuneytið tilkynnti um sektina og skaðabæturnar á fundi í Boston í gærdag. Þar segir að sektin sé upp á 150 milljónir dollara og skaðabætur til neytenda nemi um 600 milljónum dollara. Þetta er mesta sekt sem lyfjafyrirtæki hefur verið dæmt til að greiða í sögunni.
Fram kemur í frétt um málið í New York Times að í heildina hafi GlaxoSmithKline framleitt 20 lyf þar sem fyllsta öryggis var ekki gætt. Lyf þessi voru framleidd í verksmiðju lyfjarisans í Puerto Rico sem vitað var að átti við mengunarvandamál að glíma í áravís.
Cheryl D. Echard fyrrum gæðastjórnandi GlaxoSmithKline mun hafa aðvarað stjórn lyfjarisans oft og mörgum sinnum um vandamálin í Puerto Rico. Stjórnin ákvað að reka Echard í stað þess að taka aðvaranir hennar alvarlega.
Meðal þeirra lyfja sem hér um ræðir er þunglyndislyfið Paxil, kremið Bactroban, sykursýkislyfið Avandia og hjartalyfið Coreg. Ekki er vitað um að nokkur hafi veikst vegna þessara lyfja og aukaverkanir er erfitt að greina.
Lögmaður á vegum Bandaríkjastjórnar segir að rannsókninni á málefnum GlaxoSmithKline sé ekki lokið.