Evran fór í fjögurra mánaða hámark gagnvart dollaranum í kjölfar ummæla bankastjóra evrópska seðlabankans, Jean-Claude Trichet, sem sagði í gær að það gæti verið að bankinn myndi hækka vexti á næsta vaxtaákvörðunarfundi sem verður í næsta mánuði.
Fjallað er um málið í Morgunkorni greiningar Íslandsbanka. Þar segir að fyrir ummæli bankastjóra hafði þess almennt verið vænst að bankinn myndi ekki hækka vexti sína fyrr en næsta haust.
Hefur gengi evrunnar nú hækkað í þrjár vikur samfleytt gagnvart dollaranum og farið úr 1,3483 dollurum 14 febrúar síðastliðinn í 1,3962 þegar þetta er ritað. Hefur evran ekki verið verðmeiri í dollurum talið frá því í nóvemberbyrjun á síðastliðnu ári eða í fjára mánuði eins og áður sagði.
Evran kostar nú 160,8 krónur og hefur hún ekki verið dýrari síðan um miðjan maí í fyrra. Hefur evran hækkað umtalsvert frá upphafi árs þegar hún kostaði 153,2 krónur. Skýrist sú hreyfing bæði af almennri styrkingu evrunnar á þessu tímabili auk veikingar krónunnar.
Hið síðarnefnda er líklegast tilkomið vegna árstíðarbundinna sveiflna í gjaldeyristekjum þjóðarbúsins, inngripa Seðlabankans á gjaldeyrismarkaði, minni munar á innlendum og erlendum vöxtum sem hefur skapast við vaxtalækkanir Seðlabankans og væntinga um afnám hafta og áhrif þess á framtíðarvirði krónunnar.

