Ræðst ekki fyrr en í upphitun hvort Sean spili í kvöld Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 21. mars 2011 15:00 Sean Burton. Mynd/Valli
Það er ekki enn vitað hversu mikinn þátt bandaríski bakvörðurinn Sean Burton getur tekið í öðrum leik Snæfells og Hauka í átta liða úrslitum Iceland Express deildar karla í körfubolta en liðin mætast á Ásvöllum klukkan 19.15 í kvöld. Burton meiddist á ökkla í fyrsta leikhluta í fyrsta leiknum sem Snæfell vann 76-67. Hann kom ekkert meira við sögu í þeim leik en Snæfellsliðið náði að vinna upp tólf stiga forskot Hauka og tryggja sér sigurinn. „Hann er tæpur fyrir leikinn. Hann verður í búning en við metum það á Ásvöllum hversu mikið hann spilar. Hann er búinn að vera í meðferð. Við munum sjá hvernig ökklinn hans verður í upphituninni," segir Ingi Þór Steinþórsson, þjálfari Snæfells þegar Vísir heyrði í honum í dag. „Þetta lítur betur út en maður átti von á. Ég kom honum til eins snillings sem hjálpaði okkur töluvert og ég vona að það sé nóg. Við vitum það samt ekki fyrr en hann hitar upp," sagði Ingi en þetta er annað árið í röð sem Sean meiðist illa í úrslitakeppninni. „Þetta er þungt á sálina hjá honum en þetta eru öðruvísi meiðsli en í fyrra. Þetta er ekki líkt meiðslunum þá því þá reif hann vöðva í fæti. Núna er þetta ökklasnúningur þó að hann hafi verið nokkuð svæsinn," sagði Ingi Þór. Snæfell getur komist í undanúrslitin með sigri í leiknum á Ásvöllum í kvöld. „Það er mjög mikilvægt fyrir okkur að klára þetta í kvöld til þess að hann fái tíma til þess hvíla sig," sagði Ingi að lokum.
Dominos-deild karla Mest lesið Phil Mickelson rekinn úr klúbbi fyrir að snerta konu óviðeigandi Golf Bestu-deildarpar á von á barni saman Íslenski boltinn Hver er flottasta treyjan á HM? Fótbolti Gunnlaugur æfir með þeim besta í heimi fyrir U.S. Open Golf Þetta þarf að gerast svo við fáum leik á milli Messi og Ronaldo á HM Fótbolti Þá roðnaði Beckham Fótbolti Fyrirliði Japans missir af HM og hættir í landsliðinu Fótbolti Ferðaðist ekki með liðinu Fótbolti Baldur tekur eina stærstu stjörnu Stjörnuliðsins yfir á Álftanes Körfubolti Íhugar að rifta samningnum áður en hann byrjar Fótbolti Fleiri fréttir Jesús áfram í Stjörnunni Stuðningsmenn Knicks köstuðu eggi í Wembanyama Elvar og félagar fara 2-0 undir heim til Kanaríeyja Baldur tekur eina stærstu stjörnu Stjörnuliðsins yfir á Álftanes Stólarnir ráða Ísak Wíum Ármann fær sæti í Bónus deildinni og framlengir við Jónínu „Heimskasta körfuboltalið í sögu mannkyns“ Söguleg endurkoma Knicks LeBron James um „Geitina“ í NBA: Enginn betri en ég Wembanyama sleppur við refsingu Kolbrún snýr aftur heim og semur við Tindastól Steinar áfram hjá Ármanni Hamar og Þór hætta samstarfi Martin í úrvalsliðinu Martin spilar til úrslita um þýska meistaratitilinn Elvar og félagar lentu í gininu á Börsungum í kvöld „Ég hef alltaf komið sterkari til baka“ „Ég fer í góðu og þeir skilja mína ákvörðun“ KR blæs í herlúðra: Sara Rún og Emma Sóldís í Vesturbæinn Baulað á Trump í New York Spurs minnka muninn í úrslitaeinvíginu Þrefaldur NBA-meistari með Jordan látinn Ekkert teiti því Trump mætir á völlinn Martin á leið í oddaleik Elvar og félagar hentu meisturum Real Madrid úr leik Tryggvi úr leik þrátt fyrir góða frammistöðu Bræðurnir áfram og meistararnir halda þéttum kjarna Dæmdur í lífstíðarbann frá öllum NBA leikjum Stórveldið svaraði fyrir sig á Tenerife Lokuðu á Martin og héldu sér á lífi Sjá meira