Ballack afþakkar kveðjuleik með þýska landsliðinu Kolbeinn Tumi Daðason skrifar 18. júní 2011 22:45 Ballack og Löw fyrir framan myndavélina í Suður-Afríku síðastliðið sumar Mynd/Nordic Photos/Getty
Michael Ballack hefur brugðist illa við boði Joachim Löw, landsliðsþjálfara Þýskalands, um að ljúka landsliðsferlinum í vináttuleik gegn Brasilíu í ágúst. Löw hefur sagst ekki ætla að velja fyrirliðann fyrrverandi aftur í landsliðið. Tími yngri leikmanna sé kominn. Ballack hefur skorað 42 mörk í 98 landsleikjum fyrir Þýskaland. „Að kalla þennan vináttuleik sem er löngu búið að skipuleggja kveðjuleik er hlægilegt. Ég veit að ég skulda aðdáendum mínum að spila kveðjuleik en ég get ekki tekið boðinu," sagði Ballack. „Ég heyrði fyrst af því í gær í fréttatilkynningu, þar sem ég var í sumarfríi, að landsliðsþjálfarinn ætlaði ekki að velja mig aftur í hópinn. Stíll og innihald yfirlýsingar hans er í takt við framkomu hans í minn garð síðan ég meiddist síðastliðið sumar," bætti Ballack við. Ballack sem leikur með Bayer Leverkusen hefur ekki leikið fyrir Þýskaland síðan hann meiddist á ökkla í mars á síðasta ári. Hann missti af HM í Suður-Afríku af þeim sökum.
Þýski boltinn Mest lesið Fangelsisdómur hangir yfir höfði Haaland Fótbolti „Hefurðu enga sómakennd?“ Fótbolti Áður óbirt efni frá heimsókn landsliðsins í vinsælasta þátt Bandaríkjanna Körfubolti Ótrúlegasta stoðsending tímabilsins strax í nóvember Körfubolti Hefur Ben Simmons náð botninum? Körfubolti Verstappen heimsmeistari fjórða árið í röð Formúla 1 Ætla flokkarnir að reisa ný heimili fyrir landsliðin? Sport Englandsmeistararnir niðurlægðir á heimavelli Enski boltinn Cecilía búin að loka og læsa marki Inter Fótbolti Russell á ráspól í fyrramálið Formúla 1 Fleiri fréttir Framarar sótt fjóra bita í næstu deild „Hefurðu enga sómakennd?“ Fangelsisdómur hangir yfir höfði Haaland Diljá Ýr á skotskónum og OH Leuven á toppinn Héldu hreinu í fyrsta sinn manni færri megnið af leiknum Celta sótti jafntefli gegn tíu Börsungum Haraldur Árni áfram með Grindavík Sveindís funheit inn af bekknum og setti tvö Bodø/Glimt með langþráðan sigur Úlfarnir skelltu Fulham og enn bíður Villa eftir sigri Englandsmeistararnir niðurlægðir á heimavelli Gamla konan áfram taplaus Óli Valur til Blika og sagður sá dýrasti á Íslandi Cecilía búin að loka og læsa marki Inter Stefan ætlar að koma Keflavík í deild þeirra bestu Jóhann lagði upp langþráð mark Ævintýri Róberts og félaga heldur áfram Ingibjörg og Hafrún nálgast Emilíu Létt gönguferð í skóginum hjá Arsenal Einfalt hjá Chelsea sem sækir að toppnum Fjórtán ára á æfingum með Arsenal Líta á tilboðið í Gylfa sem grín Fær konuna til að eiga við draugana og ætlar ekki að pissa í hornin Albert kemur til greina sem sá besti á Ítalíu Amorim fullur sjálfstrausts á fyrsta blaðamannafundinum Meistararnir og Skytturnar missa út lykilmenn Valgeir til Breiðabliks Eyþór yfirgefur KR Annað áfall fyrir Hörð sem fór til sama læknis og Rodri Ísland mætir Kósovó í sérstöku umspili Sjá meira