Stenson braut 7-járnið í bræðiskasti, myndband Sigurður Elvar Þórólfsson skrifar 21. júní 2011 23:45
Henrik Stenson var allt annað en ánægður með eitt högg hjá sér á lokadegi opna bandaríska meistaramótsins á sunnudaginn. Sænski kylfingurinn tók 7-járnið og braut járnskaftið á því en hann skar sig nokkuð illa á fingri við þær æfingar. Stenson þurfti að fá plástur hjá kylfubera sínum á vísifingur hægri handar. „Ég skar mig nokkuð illa og það þurfti að laga þetta aðeins. Ég kláraði hringinn og þetta er ekkert stórmál," sagði Stenson en hann endaði í 23. sæti á mótinu sem verður að teljast góður árangur hjá Svíanum sem hefur ekki komist í gegnum niðurskurðinn á síðustu 5 PGA mótum. Hann lék lokahringinn á 74 höggum en hann stefnir að því að leika á BMW meistaramótinu sem fram fer í München. Stenson hefur verið í lægð undanfarin misseri eftir að hafa komist í 4. sæti heimslistans. Hann var um tíma í 132. sæti á þeim lista. Stenson var í ágætis málum fyrir lokahringinn á opna bandaríska en hann fékk fimm fugla á síðustu 11 holunum og náði ekki að vera í hópi 10 efstu.
Golf Mest lesið Kemur Íslendingnum unga til varnar Fótbolti „Við eigum bara svalasta fyrirliða í Evrópu“ Fótbolti „Allur heimurinn veit hvað þessir leikmenn gera“ Handbolti „Þetta hefði getað komið fyrir mig“ Fótbolti Arnar kynnti landsliðshópinn Fótbolti Víkingar syrgja stuðningsmann sem lést langt fyrir aldur fram Íslenski boltinn Hópurinn í lokaleikjunum: Kristian snýr aftur og Daníel er með Fótbolti Sjáðu upprisu United og öll hin mörkin úr Meistaradeildinni Fótbolti „Mikið af lygum um margt sem hefur gerst á milli mín og stjórans“ Fótbolti „Ég er ekki Mohamed Salah“ Enski boltinn Fleiri fréttir Rahm myndi sætta sig við sömu refsingar og Koepka fékk Hitti holu í höggi á fyrsta hring ævinnar Eva bætti hvert metið á fætur öðru Frábær árangur Evu sem sló met í Bandaríkjunum Rahm segist vilja rifta við LIV Sjá meira