Lögmaður Breivik segir hann geðveikan 26. júlí 2011 19:00
Anders Behring Breivik er ánægður með afleiðingar hermdarverkanna sem hann framdi á föstudag, þó hann hafi ekki búist við að geta gengið jafnlangt og raun bar vitni. Lögfræðingur hans veitti hrollvekjandi innsýn í hugarheim hans í dag. Geir Lippestadt, lögfræðingur Anders Behring Breivik, hélt fyrsta blaðamannafund sinn í dag, og svaraði spurningum fjölmiðla um hugarástand og ódæðisverk skjólstæðings síns. Hann segir að maðurinn hafi gert ráð fyrir að valda miklum skaða, og hafi verið ánægður með afleiðingar árásanna. „Já, hann var ánægður" Lögfræðingurinn segir að Breivik hafi verið undir áhrifum örvandi efna þegar hann framdi árásina, en hann lýsti einnig hrollvekjandi sjálfsmynd Breiviks. Hann liti á sjálfan sig sem bjargvætt, en að mati lögfæðingsins bendir allt málið til þess að hann sé geðveikur. Þá segir hann að það hafi komið Breivik á óvart að hann skyldi hafa komist alla leið í Útey eftir að hann bílasprengja hans sprakk í Osló, en lögregla hefur verið gagnrýnd fyrir hæg viðbrögð við skotárás mannsins. „Hann taldi að lögreglan myndi koma þangað fyrr eða að lögreglan yrði komin þangað á undan honum. Þetta kom honum á óvart." Lippestadt segir að skjólstæðingur hans sé afar rólegur og yfirvegaður, en hann gangist nú undir læknisrannsókn. Enn sem komið er sýnir hann engin merki eftirsjár. „Hann sagði að það væri nauðsynlegt að hefja stríð hérna í Evrópu og um allan hinn vestræna heim. Honum þykir leitt að það skyldi vera nauðsynlegt en hann segir að það hafi verið nauðsynlegt." Breivik er nú í einangrunarvist í haldi lögreglu, en enginn fjölskyldumeðlima hans hefur reynt að hitta hann. Norska lögreglan greindi frá því á blaðamannafundi í dag að því verði haldið leyndu hvar maðurinn er í haldi, en hann verður áfram yfirheyrður vegna málsins.
Hryðjuverk í Útey Noregur Mest lesið Aukafundur borgarfulltrúa: Tugir stöðugilda í nýrri hrinu uppsagna og niðurskurðar Innlent Bein útsending: Hildur svarar fyrir uppsagnir Innlent „Ég geri ekki athugasemd við það að þetta símtal hafi átt sér stað“ Innlent Ákærður fyrir að drepa tvo af gáleysi Innlent Sjötíu ákærðir fyrir svíkja fé út úr Landsbankanum Innlent Fækka um rúmlega sjötíu stöðugildi Innlent „Galin vinnubrögð“ Innlent Gefur meirihlutanum falleinkunn Innlent Nota rústamyndavél við leit að Lúðvík Innlent Þyrlan kölluð til: Maðurinn fannst heill á húfi Innlent Fleiri fréttir Efins um „einkaframtak Norðmanna og Finna“ Tveir ákærðir vegna uppákomu við bandaríska herstöð á Englandi Ákæra Comey enn eina ferðina Stubb og Støre ræddu við Pútín Fóðruðu loftslagsvá aðeins minna en metárið á undan Kjörstaðir opnir í Ísrael Óljóst hver mun leiða ríkisstjórn Stúdenta í Serbíu Trump segir svindlað í brasilísku kosningunum Kosningar í Ísrael: Arabaflokkarnir gætu ráðið úrslitum Biskupar sjá eftir bænastund með Trump Fundu 31 byssu, Hitler-brjóstmynd og danskan fána Áhrifavaldar sektaðir fyrir að auglýsa veðmál Stór hluti Oxford Street orðinn göngugata Sagðir vilja fá Orbán til að stýra Sameinuðu þjóðunum Áfall fyrir Donald Trump og Vladimír Pútín Tókst ekki moða neitt úr miðjunni Fundu auðgað úran í dánarbúi Óvæntur sigur Lula en Bolsonaro vill ógilda úrslitin „Noregur sökkar“ Vučić játar ósigur Stúdentahreyfing freistar að velta þaulsetnum Vučić Leikur á hnífsegg í Brasilíu Machado snýr heim eftir nær árs útlegð Hinn grunaði með geðklofa og fluttur á geðdeild Stefna Anthropic fyrir brot á höfundarrétti Presley Loka Vesturbakkanum á kjördag Ísraela Serbar ganga til skyndikosninga Baráttan um Brasilíu Sleit sambandi við föður sinn í ljósi ásakana Nóg sé komið af Trump Sjá meira