Barcelona tók fyrsta titil tímabilsins Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar 17. ágúst 2011 22:59 Leikmenn Barcelona fagna í kvöld. Nordic Photos / AFP
Lionel Messi var enn og aftur hetja Barcelona en hann skoraði tvívegis í kvöld er Börsungar unnu Real Madrid í síðari leik liðanna um spænska ofurbikarinn. Barcelona vann 3-2 sigur í kvöld og þar með 5-4 samanlagt. Leikurinn stefndi reyndar í framlengingu en Messi skoraði sigurmark sinna manna á 88. mínútu leiksins með skoti af stuttu færi. Messi átti þátt í öllum mörkum Barcelona í kvöld. Hann átti sendingu inn fyrir vörn Real á 15. mínútu sem Andres Iniesta tók við og vippaði boltanum yfir Iker Casillas í marki Madrídinga. Cristiano Ronaldo náði svo að jafna metin fyrir Real fimm mínútum síðar en Messi kom heimamönnum aftur yfir með marki á lokamínútu fyrri hálfleiksins. Ekkert var skorað lengi vel í síðari hálfleik þar til að Karim Benzema skoraði á 82. mínútu eftir klafs í teig heimamanna. Cesc Fabregas kom inn á í sínum fyrsta leik með Barcelona mínútu síðar og hann átti þátt í sigurmarkinu. Hann lagði boltann á Messi sem átti laglegt samspil við Adriano, sem kom einnig inn á sem varamaður í kvöld. Marcelona, bakvörður Real Madrid, fékk rautt spjald á fjórðu mínútu uppbótartímans fyrir að klippa Fabregas niður og ætlaði þá allt um koll að keyra. Þjóðverjinn Mesut Özil fékk einnig að sjá rautt fyrir sinn þátt í látunum. Sannarlega ótrúlegur endir á annars frábærri rimmu liðanna í kvöld.
Spænski boltinn Mest lesið Aston Villa í mál við Jamie Carragher Enski boltinn „Á meðan er hann að sofa hjá Ólympíufara í sundi“ Sport „Á stuttum tíma eru mínir nánustu vinir farnir“ Íslenski boltinn Arteta harður við Dowman: „Þetta er ekki Disneyland“ Enski boltinn Styttan af Dwyane Wade fékk nýjan haus Körfubolti Uppgjörið: Grindavík-Njarðvík 104-103 | Pargo með sigurkörfuna Körfubolti „Þessi seinni hálfleikur var það besta sem við höfum gert hingað til” Körfubolti Réttlætanlegt að beita táragasi á norska stuðningsmannahópa Fótbolti Fái að fresta prófum til að spila fyrir Íslands hönd Handbolti „Lið sem enginn vill mæta núna“ Körfubolti Fleiri fréttir Arteta harður við Dowman: „Þetta er ekki Disneyland“ Aston Villa í mál við Jamie Carragher Réttlætanlegt að beita táragasi á norska stuðningsmannahópa Báðir þjálfararnir fengu rautt í hálfleik í toppslagnum Ísak lagði upp sigurmarkið Hætta við áform um Afríkukeppnina í fótbolta Iraola: Því fleiri leiki sem við vinnum, því betri verðum við Hópurinn vilji hafa Carrick áfram Nik Chamberlain rekinn frá Kristianstad „Magnús er þjálfari Aftureldingar og verður það áfram“ Grealish í agabanni hjá Everton Emil Atlason á leið í Fram Áfrýjun Arsenal á rauða spjaldi Dowman hafnað Israel frá Fram „Á stuttum tíma eru mínir nánustu vinir farnir“ „Enski boltinn er annar heimur“ Nýr heimavöllur í Milan mun koma í stað San Siro „Mér þætti það skrýtið ef að allir kölluðu mig Sir“ FIFA hagnaðist um 620 milljarða á miðum á HM-leiki Cristiano Ronaldo með þrennu Víkingar láta Einar Guðna fara Landsliðsmaður í frí hjá félagi sínu vegna persónulegra ástæðna Hallgrímur kveður KA „Ég þarf ekki fullvissu frá neinum“ Viktor Bjarki var í byrjunarliði FCK í öruggum sigri Heimir ráðinn til ÍA og kostaði nokkrar milljónir Var klár í samkeppnina við Ingvar „Eina liðið sem ég vildi ekki“ Flauta Péturs á hilluna Verða án Sesko fram í janúar Sjá meira