Stjörnukonur Íslandsmeistarar - Valur felldi Þrótt Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 30. ágúst 2011 20:18 Mynd/Stefán
Stjörnukonur unnu í kvöld fyrsta Íslandsmeistaratitilinn í sögu félagsins í meistaraflokki karla og kvenna í fótbolta með því að vinna 3-0 sigur á Aftureldingu í 16. umferð Pepsi-deildar kvenna. Stjarnan þurfti bara einn sigur í síðustu þremur umferðunum en með þessum sigri er ljóst að Valskonur geta ekki náð Stjörnunni að stigum. Stjarnan er með sjö stiga forystu á Val þegar aðeins tvær umferðir eru eftir en liðið er búið að ná í 45 af 48 mögulegum stigum í Pepsi-deildinni í sumar. Stjarnan vann þarna sinn þrettánda leik í röð í deildinni en þær hafa unnið unnu alla leiki sína frá því að liðið tapaði 2-1 fyrir Val á Hlíðarenda í lok maí. Valskonur voru búnar að vinna Íslandsmeistaratitilinn fimm ár í röð og gerðu sitt með því að vinna 5-0 sigur á Þrótti á Vodafone-vellinum. Þróttur er þar með fallið úr Pepsi-deildinni en liðið kom upp í deildina síðasta haust. Stjarnan varð að vinna til þess að tryggja sér titilinn og þær komust yfir þegar Harpa Þorsteinsdóttir fékk vítaspyrnu á upphafsmínútum seinni hálfleiks. Ásgerður Baldursdóttir steig fram og skoraði af öryggi úr vítinu. Ashley Bares og Inga Birna Friðjónsdóttir innsigluðu síðan sigurinn í lokin. Upplýsingar um markaskorara eru að hluta til fengnar frá vefsíðunni fótbolti.net.Úrslit og markaskorarar í leikjunum í kvöld:Þór/KA-Breiðablik 3-1 1-0 Arna Sif Ásgrímsdóttir (2.), 2-0 Lára Einarsdóttir (47.), 2-1 Fanndís Friðriksdóttir, víti (51.), 3-1 Arna Sif Ásgrímsdóttir (90.)Grindavík-ÍBV 0-4 0-1 Berglind Björg Þorvaldsdóttir (16.), 0-2 Danka Podovac (36.), 0-3 Vesna Smiljkovic (39.), 0-4 Berglind Björg Þorvaldsdóttir (58.)Fylkir-KR 4-1 1-0 Hrafnhildur Hekla Eiríksdóttir (11.), 1-1 Berglind Bjarnadóttir (28.), 2-1 Anna Björg Björnsdóttir (33.), 3-1 Lidija Stojkanovic (65.), 4-1 Fjóla Dröfn Friðriksdóttir (72.)Valur-Þróttur 5-0 1-0 Laufey Ólafsdóttir (15.), 2-0 Rakel Logadóttir (16.), 3-0 Rakel Logadóttir (45.), 4-0 Mist Edvardsdóttir (48.), 5-0 Málfríður Erna Sigurðardóttir (90.+3)Stjarnan-Afturelding 3-0 1-0 Ásgerður Stefanía Baldursdóttir, víti (48.), 2-0 Ashley Bares (88.), 3-0 Inga Birna Friðjónsdóttir (90.+2)
Pepsi Max-deild kvenna Mest lesið Aston Villa í mál við Jamie Carragher Enski boltinn „Á meðan er hann að sofa hjá Ólympíufara í sundi“ Sport „Á stuttum tíma eru mínir nánustu vinir farnir“ Íslenski boltinn Arteta harður við Dowman: „Þetta er ekki Disneyland“ Enski boltinn Styttan af Dwyane Wade fékk nýjan haus Körfubolti Uppgjörið: Grindavík-Njarðvík 104-103 | Pargo með sigurkörfuna Körfubolti „Þessi seinni hálfleikur var það besta sem við höfum gert hingað til” Körfubolti Réttlætanlegt að beita táragasi á norska stuðningsmannahópa Fótbolti „Lið sem enginn vill mæta núna“ Körfubolti Uppgjörið: KR - Sindri 107-102 | Seiglan sigraði Sindra Körfubolti Fleiri fréttir „Magnús er þjálfari Aftureldingar og verður það áfram“ Emil Atlason á leið í Fram Israel frá Fram „Á stuttum tíma eru mínir nánustu vinir farnir“ Víkingar láta Einar Guðna fara Hallgrímur kveður KA Heimir ráðinn til ÍA og kostaði nokkrar milljónir Var klár í samkeppnina við Ingvar Flauta Péturs á hilluna Engin uppalin spilaði með Fram „Ég hef sjaldan, ef nokkurn tímann, kynnst öðru eins félagi og Víkingi“ Heimir farinn frá Fylki Einn dyggasti sonur ÍBV semur við Val „Á meðan liðið er að vinna skiptir ekki máli hvort að ég skori eða einhver annar“ Ásgeir Páll kveður Keflavík og Ísland Arnar spenntur og „no komment“ frá Magnúsi „Neyði menn ekki til að vera hérna“ Aron Þórður hættur Draumurinn að þjálfa Blika Tímabilið vonbrigði en bjartir tímar framundan Omar Sowe kominn í KR-treyjuna „Úff, hvað er ég búinn að koma mér út í hérna?“ „Hún gæti orðið okkar langbesti leikmaður“ Breytingar boðaðar í Garðabæ Davíð Smári hættur hjá Njarðvík Rúnar Páll kynnti teymið sitt Ólafur Ingi hættur með Blika „Virkaði öfugt við það sem hann vonaðist til“ Harma ákvörðun Hattar Ingibjörg valin sú efnilegasta Sjá meira