Gamall skólabróðir og besti vinur Bartolotta verður með ÍR í vetur Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 11. október 2011 16:45 Jimmy Bartolotta. Mynd/Arnþór
Karlalið ÍR í körfubolta hefur fundið eftirmann Brandon Bush sem var látinn fara á dögunum. Nýi bandaríski leikmaðurinn hjá liðinu heitir Williard Johnson, er 204 sm á hæð og spilar sem framherji. „Hann er gamall skólabróðir Jimmy Bartolotta úr MIT og þeir eru bestu vinir," sagði Gunnar Sverrisson, þjálfari ÍR, um nýja Bandaríkjamanninn sinn. Jimmy Bartolotta ákvað á dögunum að taka annað tímabil með ÍR-liðinu en hann var einn allra besti leikmaður Iceland Express deildarinnar í fyrra. „Það er endalaust og skemmtilegt happadrætti að finna góða Ameríkana. Ég var einstaklega heppinn með Jimmy í fyrra og það er gott á þessum tímapunkti að geta fundið mann sem fær góð meðmæli," segir Gunnar en Johnson var með 17,1 stig og 7,1 frákast að meðaltali á lokaári sínu í MIT-háskólanum. „Hann er 204 sm alhliðaleikmaður sem spilar þrist eða fjarka. Hann er í fínu formi og var að spila á Kosta Ríka undanfarna fimm mánuði," sagði Gunnar Sverrisson og bætir við „Hann var líka fyrirliði í MIT öll fjögur árin og er mikill leiðtogi," segir Gunnar. Það spillir ekki fyrir að Williard Johnson þykir skemmtilegur í hóp og það verður því gaman á æfingum ÍR-inga í Seljaskólanum í vetur. „Hann er mikill trúður og mikill fjörkálfur. Við hlæjum alveg nógu mikið á æfingunum en það er alltaf gott að bæta við skemmtilegum einstaklingum í hópinn," sagði Gunnar að lokum.
Dominos-deild karla Mest lesið Gunnlaugur æfir með þeim besta í heimi fyrir U.S. Open Golf Phil Mickelson rekinn úr klúbbi fyrir að snerta konu óviðeigandi Golf Bestu-deildarpar á von á barni saman Íslenski boltinn Hver er flottasta treyjan á HM? Fótbolti Sjáðu Elísabetu vinna titilinn með fjögurra sentímetra mun Sport Grafarþögn í útsendingu Suður-Afríku eftir leik Fótbolti Þetta þarf að gerast svo við fáum leik á milli Messi og Ronaldo á HM Fótbolti Íhugar að rifta samningnum áður en hann byrjar Fótbolti Ferðaðist ekki með liðinu Fótbolti Maður dagsins á HM: Jafnfætti prinsinn jafnaði sig í tæka tíð Fótbolti Fleiri fréttir Jesús áfram í Stjörnunni Stuðningsmenn Knicks köstuðu eggi í Wembanyama Elvar og félagar fara 2-0 undir heim til Kanaríeyja Baldur tekur eina stærstu stjörnu Stjörnuliðsins yfir á Álftanes Stólarnir ráða Ísak Wíum Ármann fær sæti í Bónus deildinni og framlengir við Jónínu „Heimskasta körfuboltalið í sögu mannkyns“ Söguleg endurkoma Knicks LeBron James um „Geitina“ í NBA: Enginn betri en ég Wembanyama sleppur við refsingu Kolbrún snýr aftur heim og semur við Tindastól Steinar áfram hjá Ármanni Hamar og Þór hætta samstarfi Martin í úrvalsliðinu Martin spilar til úrslita um þýska meistaratitilinn Elvar og félagar lentu í gininu á Börsungum í kvöld „Ég hef alltaf komið sterkari til baka“ „Ég fer í góðu og þeir skilja mína ákvörðun“ KR blæs í herlúðra: Sara Rún og Emma Sóldís í Vesturbæinn Baulað á Trump í New York Spurs minnka muninn í úrslitaeinvíginu Þrefaldur NBA-meistari með Jordan látinn Ekkert teiti því Trump mætir á völlinn Martin á leið í oddaleik Elvar og félagar hentu meisturum Real Madrid úr leik Tryggvi úr leik þrátt fyrir góða frammistöðu Bræðurnir áfram og meistararnir halda þéttum kjarna Dæmdur í lífstíðarbann frá öllum NBA leikjum Stórveldið svaraði fyrir sig á Tenerife Lokuðu á Martin og héldu sér á lífi Sjá meira