Keflvíkingar tryggðu sér úrslitaleik á móti Njarðvík Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 21. nóvember 2011 21:09 Charles Michael Parker lék vel í kvöld. Mynd/Hjalti Vignisson
Keflvíkingar unnu 22 stiga sigur á Valsmönnum, 115-93, í Vodafonehöllinni í kvöld í Lengjubikar karla og tryggðu sér með því hreinan úrslitaleik á móti Njarðvík um sigur í D-riðlinum og þar með sæti í undanúrslitum keppninnar. Keflvíkingar léku án Magnúsar Þórs Gunnarssonar og voru í vandræðum í fyrri hálfleiknum. Í seinni hálfleik settu þeir hinsvegar í gírinn og tryggðu sér nokkuð öruggan sigur. Valsmenn hafa hinsvegar tapað öllum ellefu leikjum tímabilsins, sex í Iceland Express deildinni og fimm í Lengjubikarnum. Charles Michael Parker skoraði 28 stig og gaf 7 stoðsendingar hjá Keflavík, Jarryd Cole var með 21 stig og Steven Gerard Dagustino skoraði 19 stig. Hafliði Brynjarsson skoraði mest af íslensku leikmönnunum eða 12 stig. Garrison Johnson og Darnell Hugee skoruðu báðir 19 stig fyrir Val og Igor Tratnik skoraði 17 stig og tók 12 fráköst. Ragnar Gylfason var stigahæstur íslensku leikmannanna með 10 stig. Keflavík komst í 9-2 strax í upphafi leiks en Valsmenn voru komnir 11-10 yfir tveimur mínútum síðar og náðu mest sjö stiga forskoti, 22-15, í fyrsta leikhluta. Valur var þó aðeins með tveggja stiga forskot eftir fyrsta leikhlutann, 26-24. Keflavík komst yfir í 35-32 eftir þriggja mínútna leik í öðrum leikhluta en Valsmenn gáfu sig ekki og leikurinn hélst jafn fram að hálfleik. Steven Gerard Dagustino endaði leikhlutann á þristi og sá til þess að Keflavík var 56-54 yfir í hálfleik. Sigurður Ingimundarson kveikti í sínum mönnum í hálfleik ef marka má byrjun hans manna. Keflavík vann fyrstu þrjár mínútur þriðja leikhlutans 11-2 og var komið í 67-56. Keflavík vann þriðja leikhlutann 24-13 og var því 13 stigum yfir fyrir lokaleikhlutann. Keflavíkurliðið landaði síðan á endanum öruggum 22 stiga sigri, 115-93.Lengjubikar karlar, D-riðillValur-Keflavík 93-115 (26-24, 28-32, 13-24, 26-35)Valur: Darnell Hugee 19/6 fráköst, Garrison Johnson 19/5 fráköst, Igor Tratnik 17/12 fráköst, Ragnar Gylfason 10/5 fráköst, Austin Magnus Bracey 8, Benedikt Blöndal 5, Snorri Þorvaldsson 4, Birgir Björn Pétursson 4/8 fráköst, Kristinn Ólafsson 4, Alexander Dungal 3.Keflavík: Charles Michael Parker 28/5 fráköst/7 stoðsendingar, Jarryd Cole 21/8 fráköst, Steven Gerard Dagustino 19/8 fráköst/5 stoðsendingar, Hafliði Már Brynjarsson 12, Almar Stefán Guðbrandsson 9, Ragnar Gerald Albertsson 8, Halldór Örn Halldórsson 6, Gunnar H. Stefánsson 5, Sigurður Friðrik Gunnarsson 3, Valur Orri Valsson 2, Kristján Tómasson 2.
Dominos-deild karla Mest lesið Gunnlaugur æfir með þeim besta í heimi fyrir U.S. Open Golf Phil Mickelson rekinn úr klúbbi fyrir að snerta konu óviðeigandi Golf Grafarþögn í útsendingu Suður-Afríku eftir leik Fótbolti Afhjúpa minningarstein Steina Gísla Íslenski boltinn Bestu-deildarpar á von á barni saman Íslenski boltinn Lélegasti framherji mótsins strax fundinn Sport Hver er flottasta treyjan á HM? Fótbolti Sjáðu Elísabetu vinna titilinn með fjögurra sentímetra mun Sport Hoppuðu og skríktu af gleði þegar símtalið loksins barst Fótbolti Almar ekki í kassanum Fótbolti Fleiri fréttir Jesús áfram í Stjörnunni Stuðningsmenn Knicks köstuðu eggi í Wembanyama Elvar og félagar fara 2-0 undir heim til Kanaríeyja Baldur tekur eina stærstu stjörnu Stjörnuliðsins yfir á Álftanes Stólarnir ráða Ísak Wíum Ármann fær sæti í Bónus deildinni og framlengir við Jónínu „Heimskasta körfuboltalið í sögu mannkyns“ Söguleg endurkoma Knicks LeBron James um „Geitina“ í NBA: Enginn betri en ég Wembanyama sleppur við refsingu Kolbrún snýr aftur heim og semur við Tindastól Steinar áfram hjá Ármanni Hamar og Þór hætta samstarfi Martin í úrvalsliðinu Martin spilar til úrslita um þýska meistaratitilinn Elvar og félagar lentu í gininu á Börsungum í kvöld „Ég hef alltaf komið sterkari til baka“ „Ég fer í góðu og þeir skilja mína ákvörðun“ KR blæs í herlúðra: Sara Rún og Emma Sóldís í Vesturbæinn Baulað á Trump í New York Spurs minnka muninn í úrslitaeinvíginu Þrefaldur NBA-meistari með Jordan látinn Ekkert teiti því Trump mætir á völlinn Martin á leið í oddaleik Elvar og félagar hentu meisturum Real Madrid úr leik Tryggvi úr leik þrátt fyrir góða frammistöðu Bræðurnir áfram og meistararnir halda þéttum kjarna Dæmdur í lífstíðarbann frá öllum NBA leikjum Stórveldið svaraði fyrir sig á Tenerife Lokuðu á Martin og héldu sér á lífi Sjá meira