Fram fellur frá kærunni Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar 17. febrúar 2011 10:05 Markús er hér annar frá vinstri í umræddum leik.
Fram hefur ákveðið að falla frá kæru sinni vegna leik liðsins gegn Val í undanúrslitum Eimskipsbikarkeppni karla. Þetta kom fram í yfirlýsingu frá stjórn handknattleiksdeildar Fram sem birtist á heimasíðu félagsins í morgun. Þar kemur fram að Fram hafi ekki áhuga á að vinna til verðlauna með tilstuðlan dómstóla en að það sé engu að síður trú deildarinnar að Valur hafi teflt fram ólöglegum leikmanni í leiknum. Mikið hefur verið fjallað um málið síðan að það kom upp en Fram vill meina að Markús Máni Michaelsson hafi ekki verið löglegur leikmaður Vals í leiknum. Í morgun birtist frétt á heimasíðu HSÍ að „vafi sé á að sú framkvæmd sem verið hefur á móttöku leikmannasamninga standist ákvæði reglugerðar HSÍ". Stjórn sambandsins muni taka umrædda framkvæmd til endurskoðunar og reyna að gera reglur skýrari en nú eru. Yfirlýsingin frá Fram í heild sinni: „Í ljósi yfirlýsingar HSÍ þar sem lýst er yfir að vafi sé um að sú framkvæmd sem viðhöfð hefur verið standist reglugerðir sambandsins hefur handknattleiksdeild Fram ákveðið að falla frá kæru sinni í tengslum við bikarleik Vals og Fram s.l. sunnudag. Það er bjargföst trú handknattleiksdeildar Fram að Valur hafi í umræddum leik teflt fram leikmanni án leikheimildar og þar með ólöglegu liði, en að vel athuguðu máli hugnast forsvarsmönnum deildarinnar lítt sú tilhugsun að vinna til verðlauna fyrir tilstuðlan dómstóla. Handknattleiksdeild Fram harmar skort á samræmi í framkvæmd við útgáfu keppnisleyfa annars vegar og gildandi reglna HSÍ hins vegar, og trúir því og treystir að HSÍ muni færa þau mál til betri vegar. Fram vill að lokum hvetja handknattleiksáhugamenn til að fjölmenna í Laugardalshöllina og styðja við sitt lið. Stjórn handknattleiksdeildar Fram"
Olís-deild karla Mest lesið Þjóðhátíð er Gunnar Lárus kom heim á Reyðarfjörð Sport ÍA fékk skömm í hattinn en undirbýr byltingu Íslenski boltinn Akranesvöllur sundurgrafinn og handónýtur Íslenski boltinn Hreinskilin hnefaleikakona: „Ég er hætt að vera næs“ Sport Como - Manchester United | Fámennt United-lið mætt til Ítalíu Fótbolti Sá hann á æfingu og vissi að hann hefði fundið gull Enski boltinn „Sjáið Rio, hann var frábær í kvöld“ Enski boltinn Nablinn grillaði verstu liðin: „Er bærinn Hveragerði líka í fallbaráttu?“ Körfubolti Með slitið krossband og þarf að fara í aðgerð Fótbolti „Ég æfði tíu klukkustundir á dag en enginn sá mig“ Enski boltinn Fleiri fréttir Topplið Hauka burstaði Fram í Lambhagahöllinni Fyrsta tap Kristianstad kom í Íslendingaslag Viktor Gísli öflugur í sigri Barcelona Gísli og Ómar drógu vagninn í sigri Magdeburgar Elvar markahæstur en Donni fagnaði sigri Reynir markahæstur í sigri Melsungen Kærkominn sigur KA/Þór FH gekk frá Fram í seinni hálfleik Sandra með tíu í sætum sigri á Fram en Haukar halda flugi Níu mörk Jóhannesar ekki nóg Finnur til með Arnari Sætur sigur Selfoss og Gunnar með fullkominn leik KA-menn brotlentu í Garðabæ Tólf marka Dagur kom ÍBV á rétta braut „Ekkert sem ég missti svefn yfir“ Snorri Steinn valdi tuttugu leikmenn fyrir komandi verkefni Átján ára með fjórtán mörk og Haukar fljúga áfram Afturelding í annað sæti Stórleikur Hauks í sáru tapi og Andri náði ekki að mæta pabba Úr leik þrátt fyrir sjö mörk Einars Braga Gísli markahæstur og Bjarki fagnaði stórsigri Nýr styrktaraðili dönsku úrvalsdeildarinnar í handbolta umdeildur Arnór Snær: „Þvílíka veislan“ FH þurfti að þola annan skell í Portúgal Valur - Tatabánya 38-34 | Annar frábær Evrópusigur Sá besti óvænt orðaður við brottför „Það rignir ekkert inn peningum“ Mál á borði lögreglu eftir leik hjá liði Donna Benedikt birtir mynd frá slysstað HK sótti fyrsta sigurinn með einu marki Sjá meira