Með sínum heittelskaða á jólunum 1. nóvember 2011 00:01 „Ætli það séu ekki bara fyrstu jólin okkar Reynis án þess að ég fari eitthvað nánar út í það," svarar Elma Lísa Gunnarsdóttir spurð út í eftirminnileg
Jól
„Það er allur gangur á því. Ég er voða lítið með einhverjar hefðir. En maður skreytir alltaf og gerir kósý heima," segir Elma Lísa Gunnarsdóttir leikkona spurð um jólahefðirnar á hennar heimili og bætir við: „Ég, Reynir og Una, fósturdóttir mín, skreytum jólatréð saman. Ég bakaði í fyrra og það var gaman og gefandi."Hvað kemur þér í jólagírinn? „Nú til dæmis að baka og finna ilminn og hlusta á klassísk jólalög. Fara í göngutúr með sínum heittelskaða og vera með Unu, - hún er svo skemmtileg." „Við ætlum að vera tvö saman heima hjá okkur þar sem að Una okkar er í útlöndum," útskýrir Elma Lísa spurð með hverjum og hvar hún eyðir aðfangadagskvöldinu í ár. „Góða bók eða gott ilmkerti og ást og hlýju," segir hún að lokum þegar við forvitnumst hvað hana langar í jólagjöf. -elly@365.is
Jólafréttir Mest lesið Rauðir og hvítir pakkar í ár Jól Skata og jólakort á Þorláksmessu Jól Eldaði jólamatinn tólf ára gamall Jól Nótur fyrir píanó Jól Jóhanna Guðrún: Nauðsynlegt að baka með mömmu Jól Jólaguðspjallið Jól Kalkúnn með beikon- og pekanfyllingu Jólin Jólaland og verslun í bakgarði Jól Ég veit að mamma grætur á jólunum Jól Jólasaga: Besta jólagjöfin Jól