Mourinho segir tapið engu skipta Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar 7. janúar 2011 10:45 Jose Mourinho, stjóri Real Madrid. Nordic Photos / AFP
Real Madrid tapaði í gær fyrir Levante, 2-0, í spænsku bikarkeppninni en stjóri liðsins, Jose Mourinho, segir það engu máli skipta. Real vann fyrri viðureign liðanna 8-0 og því samanlagt 8-2. „Ég get ekki gagnrýnt liðið fyrir frammistöðuna í þessum leik," sagði Mourinho. „Ég vissi vel að þetta yrði erfiður leikur en við sýndum honum ekki nógu mikla athygli." „Það er alltaf erfitt að koma leikmönnum í rétta gírinn en ég tel að það sé ekki hægt að gagnrýna þá nú þar sem viðhorf þeirra var jákvætt." „Það leit út fyrir að leiknum myndi ljúka með markalausu jafntefli en Levante vann leikinn sem er gott fyrir þá. Leikmenn liðsins börðust fyrir sigrinum og áttu hann skilið. Nú mætum við næst Atletico Madrid og verður það erfiður leikur." Brasilíumaðurinn Kaka hefur verið að jafna sig á meiðslum að undanförnu og kom inn á sem varamaður í gær. „Kaka hefur verið að fá fleiri mínútur inn á vellinum og það er gott fyrir liðið. Það jákvæða er að hann á í engum vandræðum með hnéð sitt eftir leikina." „Það er því fullvíst að hann muni spila í næsta leik okkar, gegn Villarreal, um helgina. Áhorfendur á Bernabeu munu aftur fá að sjá að hann er einn af bestu leikmönnum heimsins." „Við höfðum kannski efni á að tapa þessum leik en við megum alls ekki tapa þeim næsta."
Spænski boltinn Mest lesið Þurfti að hætta við æfingu eftir mótmæli leikmanns Fótbolti Verið að rannsaka Inter Miami eftir kaupin á Casemiro Fótbolti Féll í yfirlið í miðjum leik Sport Heimsleikarnir í beinni: Fyrstu skref Bergrósar á stærsta sviðinu Sport Sjáðu tvennu Hansen og markið sem var tekið af Fótbolti Vinicius hefur gjörbreyst eftir lýtaaðgerð Fótbolti Fór á kostum í vítakeppninni og ekki síður í fögnuðinum Íslenski boltinn Mæra Messi fyrir muninn á færslum hans eftir sigur- og tapleiki Fótbolti Stoðsendingakóngur HM sakaður um ógreitt meðlag Fótbolti Semple bætist við stjörnum prýtt lið Álftaness Körfubolti Fleiri fréttir Þurfti að hætta við æfingu eftir mótmæli leikmanns Verið að rannsaka Inter Miami eftir kaupin á Casemiro Víkingarnir halda toppsætinu Segir Paredes ekki eiga að fá bann þrátt fyrir að hafa ráðist á sig Casemiro orðinn leikmaður Inter Miami Mæra Messi fyrir muninn á færslum hans eftir sigur- og tapleiki „Okkur vantar klárlega kantmann“ Ítalir gera allt sem þeir geta fyrir Guardiola Hansen sá hamingjusamasti í Víkinni „Kannski ekki besta umhverfið eins og staðan var“ Eyjakonur þétta vörnina Vandræðalega slakar Valskonur: „Til skammar“ Allir íslensku Evrópuleikirnir á Sýn Sport Sjáðu tvennu Hansen og markið sem var tekið af Vinnandi Víkingar og veikar Valskonur Sir Alex um Keegan: Ég bar gríðarlega virðingu fyrir honum Stoðsendingakóngur HM sakaður um ógreitt meðlag Vill afsögn Infantino: „Veit ekki hvort þögnin eða meðsektin er verri“ Fjórði ríkasti maður heims orðaður við kaup á hluta í Liverpool Fór á kostum í vítakeppninni og ekki síður í fögnuðinum Vinicius hefur gjörbreyst eftir lýtaaðgerð Rogers og Palmer sameinaðir hjá Chelsea Anderson sendir Nottingham Forest kveðju Liðalaus Stones eftirsóttur Óskar Smári Haraldsson: „Margt í okkar leik sem var ekki í lagi“ „Bið strákana um að vera djarfir með boltann og sækja“ Skoraði tvennu þrátt fyrir fjólubláan fót: „Hefðum kannski átt að refsa þeim meira“ „Tek fyrri hálfleikinn á mig“ Guðni Eiríksson: „Við erum að njóta“ „Búinn að bíða eftir svona leik“ Sjá meira