Skuldug félög Sigurðar Bollasonar 2. mars 2011 14:00 Sigurður Bollason
Þrjú einkahlutafélög Sigurðar Bollasonar fjárfestis töpuðu 1,4 milljörðum króna árið 2009, samkvæmt nýbirtum ársreikningum. Félögin fengu um tíu milljarða lán hjá viðskiptabönkum í júlí og ágúst 2008 til kaupa á hlutabréfum í Existu, Glitni og Landsbankanum. Hlutabréfin voru sett að veði fyrir lánunum, sem voru á gjalddaga í fyrra. Bréfin urðu verðlaus eftir bankahrunið, rúmum mánuði eftir að síðustu viðskiptum lauk. Vaxtagjöld námu samtals 1,4 milljörðum króna króna fyrir lánum félaganna árið 2009 og skýrir það tapið. Sigurður er sonur Bolla Kristinssonar, sem kenndur er við verslunina Sautján. Hann stundaði áður viðskipti með Magnúsi Ármann og Þorsteini M. Jónssyni. Skýrsla var tekin af Sigurði í tengslum við rannsókn sérstaks saksóknar á meintri markaðsmisnotkun Landsbanka um miðjan janúar. Eftir skýrslutökuna sagðist Sigurður hafa borið mikið fjárhagslegt tjón af viðskiptunum.- jab
Mest lesið Feðgin í Firðinum: „Pabbi er besti vinur minn“ Atvinnulíf Forstjóri SPAR klippti á borðann í Hafnarfirði Viðskipti innlent Icelandair tekur litáíska vél á leigu Viðskipti innlent Þúsund manna hátíðir ekkert mál en ein lítil kónguló skelfileg! Atvinnulíf Samþykktu tíu milljarða arðgreiðslu sama dag og greint var frá uppsögnum Viðskipti innlent Loftslagsgjöldin orðin milljarðakostnaður í þungum rekstri Icelandair Viðskipti innlent Flugvirkjar skora á Icelandair að hverfa frá áformum sínum Viðskipti innlent Staða Icelandair: „Þetta er hinn kaldi raunveruleiki“ Viðskipti innlent Alvotech rauk upp eftir tíðindi í morgun Viðskipti innlent Turninn á Lækjartorgi fær nýtt líf Viðskipti innlent Fleiri fréttir Gervigreindariðnaðurinn: Eru með bensíngjöf en vantar bremsu Hefur hagnast um 7,4 milljónir á mínútu í 31 ár Anthropic nær forskoti í kapphlaupinu gegn OpenAI Ný flaga færir gervigreindina af skýinu Bora eftir jarðhita á Tenerife ESB sektar Temu um 28,7 milljarða króna Meiriháttar truflanir á greiðslumiðlun á Norðurlöndum Verðmætasta fyrirtæki heims slær enn eitt metið Kröfum Musks gegn OpenAI hafnað Hefur „nær engar áhyggjur“ af eldsneytisskorti Einkaþotuflug jókst á sama tíma og eldsneytisverð rauk upp GameStop vill kaupa eBay Einn ríkasti maður Noregs látinn Lággjaldaflugfélagið Spirit Airlines hættir rekstri Ætlar að hækka tolla á bíla frá Evrópu í 25 prósent Sjá meira