Aron: Fyrsti kostur að þjálfa á Íslandi næsta vetur Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar 31. mars 2011 07:45 Aron Kristjánsson.
Aron Kristjánsson er á heimleið eftir tæpa ársdvöl í Þýskalandi þar sem hann var að þjálfa hjá úrvalsdeildarliðinu Hannover-Burgdorf. Honum var sagt upp störfum hjá félaginu fyrir nokkrum vikum en er enn á fullum launum þar sem samningur hans rennur út árið 2012. "Ég á enn í viðræðum um starfslok og er boltinn í raun hjá félaginu. Ég er í raun að verða vitlaus á biðinni," sagði Aron í samtali við Fréttablaðið í gær. "Staðan á málinu er afar viðkvæm en ég vonast til þess að þetta hafist á næstu vikum." Aron stefnir að því að koma heim til Íslands í næstu viku með fjölskyldu sinni. "Fjölskyldan mun alla vega flytja heim og það er svo spurning hvað gerist hjá mér. Ég er enn á launum hjá félaginu og þarf að vera skráður í Þýskalandi á meðan svo er. En félagið veit vel að það er mín ósk að flytja heim til Íslands og það er örugglega ekki hagur félagsins að halda þessu óbreyttu. Þeir vilja semja en ég er enn að bíða eftir svari." Aron hefur fullan hug á því að halda áfram þjálfun en hann hefur gert það gott með Haukum hér á landi og Skjern í Danmörku. "Ef tækifæri gefst á Íslandi verður það minn fyrsti kostur. Mér berast reglulega fyrirspurnir en ég hef ýtt því frá mér sem ekki kemur frá Íslandi," segir Aron en hann hefur þó ekki hafið viðræður við neitt íslenskt félag. "Ég hef sagt við þá sem ég hef talað við að ég geri ekkert fyrr en mín mál eru útkljáð hér. Það skiptir mestu máli og þá get ég byrjað að hugsa um næsta skref."
Íslenski handboltinn Mest lesið Hitti holu í höggi á fyrsta hring ævinnar Golf Hljóp lengra en nokkur annar íslenskur karlmaður hefur gert Sport Svaf ekki í margar nætur áður en hann tók ákvörðunina um Arsenal Enski boltinn „Persónuleg mál sem ég þurfti að eiga við“ Körfubolti Veigar Páll í árs bann eftir fall á lyfjaprófi Körfubolti „Af öllum stöðum þá er KA-heimilið alltaf best“ Sport Utan vallar: Sjúklingurinn er að deyja Enski boltinn „Vonandi ekki okkar einkennismerki“ Körfubolti Uppgjörið: KR - Ármann 108-74 | Frystir í Frostaskjóli Körfubolti Hverjir eru þessir 19 Íslendingar sem hafa spilað í Meistaradeildinni? Fótbolti Fleiri fréttir Uppgjörið: KA-Afturelding 32-28 | KA-menn upp í annað sætið Viktor Gísli og Baldur Fritz frábærir í Meistaradeildinni Reynir Þór með fimm marka leik í Meistaradeildinni Íslensku stelpurnar unnu Pólverja eftir flotta endurkomu Þórsarar unnu í fyrsta sinn síðan um miðjan september Topplið Hauka burstaði Fram í Lambhagahöllinni Fyrsta tap Kristianstad kom í Íslendingaslag Viktor Gísli öflugur í sigri Barcelona Gísli og Ómar drógu vagninn í sigri Magdeburgar Elvar markahæstur en Donni fagnaði sigri Reynir markahæstur í sigri Melsungen Kærkominn sigur KA/Þór FH gekk frá Fram í seinni hálfleik Sandra með tíu í sætum sigri á Fram en Haukar halda flugi Níu mörk Jóhannesar ekki nóg Finnur til með Arnari Sætur sigur Selfoss og Gunnar með fullkominn leik KA-menn brotlentu í Garðabæ Tólf marka Dagur kom ÍBV á rétta braut „Ekkert sem ég missti svefn yfir“ Snorri Steinn valdi tuttugu leikmenn fyrir komandi verkefni Átján ára með fjórtán mörk og Haukar fljúga áfram Afturelding í annað sæti Stórleikur Hauks í sáru tapi og Andri náði ekki að mæta pabba Úr leik þrátt fyrir sjö mörk Einars Braga Gísli markahæstur og Bjarki fagnaði stórsigri Nýr styrktaraðili dönsku úrvalsdeildarinnar í handbolta umdeildur Arnór Snær: „Þvílíka veislan“ FH þurfti að þola annan skell í Portúgal Valur - Tatabánya 38-34 | Annar frábær Evrópusigur Sjá meira