Gagnrýni

Skotheld blúsplata frá Andreu

Trausti Júlíusson skrifar
Önnur plata Andreu og Blúsmanna er komin út eftir þrettán ára bið.
Önnur plata Andreu og Blúsmanna er komin út eftir þrettán ára bið.
Tónlist

Rain on me rain. Andrea Gylfadóttir & Blúsmenn

Andrea Gylfadóttir er hreint mögnuð blússöngkona. Hún hefur haldið úti hljómsveitinni Blúsmönnum Andreu í tuttugu ár og árið 1998 kom út platan Andrea og Blúsmenn, sem fékk góðar viðtökur og er löngu uppseld. Nú þrettán árum síðar er komin plata númer tvö, Rain on me rain, sem var tekin upp í Hljóðrita á tveimur dögum í mars síðastliðnum.

Auk Andreu, sem syngur, eru á plötunni þeir Guðmundur Pétursson gítarleikari, Einar Rúnarsson sem leikur á Hammond, Haraldur Þorsteinsson bassaleikari og Jóhann Hjörleifsson trommuleikari. Ellefu lög eru á Rain on me rain. Tvö þeirra eru ný frumsamin lög eftir Andreu, en hin níu eru misþekktir smellir, þar á meðal I‘m Wild About That Thing, Fine and Mellow, Black Coffee, The Blues Ain‘t Nothing og meistaraverk Screamin’ Jay Hawkins, I Put a Spell on You.

Það þarf ekki að fjölyrða um þennan disk. Hann er algerlega pottþéttur fyrir það sem hann er. Allir spilararnir standa fyrir sínu, Gummi sýnir oft mikil tilþrif á gítarinn og Andrea fer hreinlega á kostum. Tilfinningin og innlifunin hjá henni er einstök. Blúsaðdáendur ættu ekki að láta Rain on me rain framhjá sér fara.

Niðurstaða: Andrea Gylfadóttir sýnir hvað hún getur á pottþéttri blúsplötu.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.