Lífið

Klöppuðu fyrir ofan höfuð á Frikka Dór

Dóra Júlía Agnarsdóttir skrifar
Friðrik Dór tók alla sína helstu slagara ásamt SinfóNord.
Friðrik Dór tók alla sína helstu slagara ásamt SinfóNord. Ólaf Hannesson

Tónlistarmaðurinn Friðrik Dór hélt tónleika með SinfóNord í Eldborg í Hörpu síðastliðið laugardagskvöld. Uppselt var á tónleikana og var mikil stemming á meðal áhorfenda.

Friðrik Dór þarf ekki að kynna fyrir landsmönnum og hefur hann haldið tónleika reglulega síðastliðin ár.

Í þetta skiptið flutti hann öll sín helstu lög ásamt Sinfóníuhljómsveit Norðurlands, SinfóNord, undir dyggri stjórn Ragnheiðar Ingunnar Jóhannsdóttur. 

Ljósmyndarinn Olaf Hannesson tók meðfylgjandi myndir. 

Gestir skemmtu sér konunglega á tónleikunum eins og sést á þessari mynd.Olaf Hannesson
Tónlistarmaðurinn bannaði gestum að klappa í kjöltunni og beindi því til þeirra að klappa fyrir ofan höfuð, það væri svokallað „stadium-klapp“. Áhorfendur fylgdu að sjálfsögðu þeim tilmælum.Olaf Hannesson
Íris Freyja Salguero og Egill Fannar Halldórsson alsæl.Olaf Hannesson
Þessir keyptu allar plötur Friðriks Dórs á vinyl. Hlustunarpartý framundan.Olaf Hannesson
Skál fyrir þér, gætu þessar hafa sagt við ljósmyndarann áður en hann smellti af.Olaf Hannesson
Ragnheiður Ingunn Jóhannsdóttir stjórnaði SinfóNord af einstakari snilld.Olaf Hannesson
Eva Ruza mætti ásamt vinkonum sínum.Olaf Hannesson
Þar sem myndin er svarthvít er ómögulegt að segja til um það hvort að þau halda á rauðvíni eða hvítvíni. En annað hvort er það, það er eflaust hægt að fullyrða.Olaf Hannesson
Ragnheiður Ingunn og Friðrik Dór baksviðs, sátt með kvöldið.Olaf Hannesson
Glæsileg hjón í góðum fíling.Olaf Hannesson
Stoltir foreldrar Friðriks, þau Ásthildur Ragnarsdóttir og Jón Rúnar Halldórsson, létu sig ekki vanta.Olaf Hannesson
Fjórar fræknar. Þesar vinkonur voru í góðum gír, eins og ávallt.Olaf Hannesson
Glæsilegir feðgar. Prinsinn í Bandaríska sendiráðinu, Haukur Harðarson, mætti ásamt syni sínum. Olaf Hannesson
Friðrik Dór sagði áhorfendum að draumur væri að rætast hjá sér að fá að flytja lögin sín ásamt sinfóníuhljómsveit. Olaf Hannesson
Uppselt var á tónleikana í Eldborg.Olaf Hannesson
Friðrik Dór fór á kostum í Eldborg á laugardagskvöld.Olaf Hannesson
Hægri höndin. Máni Pétursson,umboðsmaður Friðriks Dórs, fékk loksins að taka sjálfu með poppstjörnunni.
Hvítvín og kristall varð fyrir valinu hjá þessum vinkonum sem skemmtu sér vel.Olaf Hannesson
Líf og fjör hjá þessum vinkonum.Olaf Hannesson
Ólafur Kjaran, aðstoðarmaður Kristrúnar Frostadóttur forsætisráðherra, og Hildur Margrét Jóhannsdóttir, hagfræðingur hjá Landsbankanum, mættu ásamt dóttur sinni.Olaf Hannesson
Kaffi í bolla getur ekki klikkað í hléi.Olaf Hannesson
Mæðgurnar Aníta Daxa og Regína Ósk sáu um bakraddirnar á tónleikunum.Olaf Hannesson





Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.