Hún gefur út bækur norska höfundarins Margit Sandemo, en þeirra á meðal eru hinar vinsælu Ísfólksbækur sem selst hafa í milljónum eintaka. Norska skáldið er hins vegar ekki sátt við nafnið á nýjum þætti Ragnhildar Steinunnar Jónsdóttur, sem heitir einmitt Ísfólkið, og vill að RÚV breyti þessu hið snarasta.
Sigrún segir að hún hafi þegar leitað til Félags íslenskra bókaútgefanda með þetta mál og hún ætlar að fara með það alla leið ef þörf krefur. „Ég er einfaldlega skuldbundin til þess. Það er hluti af okkar samningi við hana að við verndum hennar hugverk fyrir svona stuldi," segir Sigrún, sem hyggst í framhaldinu sækja um einkaleyfi á nafninu Ísfólkið.

Í Ísfólkinu hittir Ragnhildur Steinunn unga íslenska eldhuga sem hafa skarað fram úr, hver á sínu sviði. Meðal gesta eru Gunnar Nelson bardagakappi og leikararnir Anita Briem og Þorvaldur Davíð Kristjánsson. Þættirnir hefja göngu sína á fimmtudagskvöld. Páll Magnússon útvarpsstjóri segir málið vera í skoðun innan veggja RÚV. „Við erum að kanna þetta, annars vegar hver lögformlega hliðin á málinu er og hins vegar hvert sanngirnissjónarmiðið er. Menn hljóta að þurfa að velta því fyrir sér hvort bækurnar hljóti tjón af því að sjónvarpsþáttur nefnist þessu nafni. Við viljum ekki brjóta nein lög heldur ætlum einfaldlega að leggja mat á hversu gild þessi sjónarmið eru og síðan tökum við í framhaldinu afstöðu til þess hvort ástæða sé til að breyta nafninu," segir Páll.
freyrgigja@frettabladid.is