Of erfitt fyrir Janet Jackson að taka þátt 2. september 2011 09:00 of erfitt Janet Jackson segir það of erfitt að koma fram á tónleikunum.
réttarhöld að hefjast Réttarhöld yfir Conrad Murray hefjast í október. Janet Jackson, systir poppkóngsins sáluga Michaels Jackson, ætlar ekki að koma fram á minningartónleikum um hann á Þúsaldar-leikvanginum í Cardiff í Wales 8. október. Ástæðan er sú að skömmu áður, eða 27. september, hefjast réttarhöld yfir lækni Jacksons, Dr. Conrad Murray. „Vegna réttarhaldanna hentar tímasetning tónleikanna mér ekki. Þetta yrði of erfitt fyrir mig,“ sagði Janet. Búist er við að Murray lýsi í réttarhöldunum yfir sakleysi sínu vegna ákæru um að hann hafi gefið popparanum banvænan lyfjaskammt. Beyoncé Knowles hefur á hinn bóginn samþykkt að taka þátt á tónleikunum. Hún ætlar að syngja lag hljómsveitarinnar Jackson 5 í gegnum gervihnött. Aðrir sem koma fram eru Christina Aguilera, Cee Lo Green, JLS og Craig David. Bræður Jacksons, Jermaine og Randy, eru óánægðir með tónleikana og segja tímasetninguna engan veginn við hæfi vegna réttarhaldanna yfir Murray. „Þrátt fyrir að við styðjum það að bróðir okkar sé heiðraður getum við ómögulega tekið þátt í viðburði sem gerist á sama tíma og réttarhöld vegna dauða Michaels verða haldin,“ sögðu þeir í yfirlýsingu.
Lífið Mest lesið Páll Óskar féll í yfirlið og þríkjálkabrotnaði Lífið Segir neytendur rænda við skókaup og bendir þeim á mikilvægan límmiða Lífið „Ósmekklegu plastblómin“ ekki frá forsetanum heldur RÚV Lífið Merzedes Club snýr aftur Lífið Fjölgar í „költinu“ hjá Kötu Odds og Þorgerði Lífið Fimm dýrustu eignirnar sem seldust árið 2024 Lífið Þungarokkarar komast ekki til Íslands Lífið Guðlaugur og Anný Rós keyptu einbýli í Garðabæ Lífið Gunnar selur þakíbúð í „New York Loft-stíl“ Lífið Eitt frægasta hús landsins enn á sölu Lífið Fleiri fréttir Jónsi og Una Torfa létu sig ekki vanta á opnunarhátíð Krafts Merzedes Club snýr aftur Fjölgar í „költinu“ hjá Kötu Odds og Þorgerði „Ósmekklegu plastblómin“ ekki frá forsetanum heldur RÚV Þungarokkarar komast ekki til Íslands Guðlaugur og Anný Rós keyptu einbýli í Garðabæ Páll Óskar féll í yfirlið og þríkjálkabrotnaði Segir neytendur rænda við skókaup og bendir þeim á mikilvægan límmiða Gunnar selur þakíbúð í „New York Loft-stíl“ Syndir á móti straumnum í old school hiphopi Sænsk sjónvarpsgoðsögn látin Fimm dýrustu eignirnar sem seldust árið 2024 Söng- og leikkonan Marianne Faithfull er látin Dagur og Ingunn hætt saman Innlit í fataskáp Dóru Júlíu Tóku hús í gegn út á Seltjarnarnesi og settu upp hjónasvítu í bílskúrnum Eitt frægasta hús landsins enn á sölu Mesta mýtan að fólkið sé grimmt og dónalegt Rán, Guðjón, Kristín og Stefán Máni hrepptu hnossið Enn einn breski erfinginn í heiminn Átján ára aldursmunur milli yngsta og elsta keppanda í Ungfrú Ísland Will Ferrell ætlar með Husavik á Broadway Skinkukallinn er víða Jörundur og Magdalena selja íbúð á eftirsóttum stað „Hann var of góður fyrir þennan grimma heim sem við búum í“ „Mér finnst ekkert skemmtilegra en að spila bridge“ „Sköpunargáfan er svo mikill prakkari að hún ullar á plön“ Tanja Ýr eignaðist dreng Kornungur og í vandræðum með holdris Helmingur labbar út þegar komið er að því að teygja Sjá meira