Gagnrýni

Pikkfastir í fortíðinni

Trausti Júlíusson skrifar
Tónlist. Greatest Hits. Vax.



Hljómsveitin Vax er búin að vera starfandi síðan 1999. Strax í byrjun spilaði hún tónlist sem var undir sterkum áhrifum frá bresku poppi sjöunda áratugarins.

Á þessari nýju tvöföldu plötu er helstu lögum sveitarinnar safnað saman á fyrri diskinn, en á þeim seinni eru útgáfur sveitarinnar á 12 klassíkum popplögum, þ.á.m. Substitute (The Who), Simple Twist of Fate (Bob Dylan), Around& Around (Chuck Berry) og Where Have All the Good Times Gone (Kinks).

Aðalsmerki Vax er einfaldur trommuleikur, flott gítarriff, lipurt orgelspil og töffaralegur söngur. Frumsömdu lögin þeirra eru mörg ágæt og ábreiðurnar eru fínn kaupauki. Vax er samt hljómsveit sem er pikkföst í fortíðinni.

Niðurstaða: Tvöfaldur stuðpakki frá bestu starfandi sixtís hljómsveit landsins.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.