Magnús og Marvin skora mest Íslendinga Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 18. nóvember 2011 07:30 Marvin skoraði samtals 53 stig í síðustu tveimur leikjum Stjörnunnar.Fréttablaðið/vilhelm
Magnús Þór Gunnarsson Eini Íslendingurinn sem er stigahæstur í sínu liði.Fréttablaðið/stefán Íslenskir leikmenn eru ekki mjög áberandi meðal stigahæstu leikmanna Iceland Express-deildar karla í körfubolta, en sex umferðir eru nú búnar af deildinni. Enginn kemst inn á topp tíu og aðeins þrír eru á topp tuttugu ef við teljum Justin Shouse með, en hann fékk íslenskan ríkisborgararétt í sumar. Marvin Valdimarsson hjá Stjörnunni og Magnús Þór Gunnarsson hjá Keflavík eru stigahæstu íslensku leikmennirnir í deildinni, en þeir hafa báðir skorað 119 stig í 6 leikjum, eða 19,8 að meðaltali í leik. Marvin hefur verið í aðalhlutverki í Stjörnuliðinu eftir að Jovan Zdravevski meiddist og skoraði 53 stig samtals í síðustu tveimur leikjum Stjörnunnar. Marvin hefur hitt úr 19 af 31 skoti sínu í þessum tveimur sigurleikjum, sem gerir 61 prósents skotnýtingu. Marvin náði í síðasta leik á móti Snæfelli að hækka stigaskor sitt þriðja leikinn í röð, en hann skoraði þá 28 stig og setti niður sex þriggja stiga körfur. Magnús hefur líka rofið tuttugu stiga múrinn í síðustu tveimur leikjum, en hann hefur skorað mikið fyrir Keflavík þrátt fyrir að þrír erlendir leikmenn leiki með Keflavíkurliðinu. Magnús hefur skorað þrjár eða fleiri þriggja stiga körfur í fimm af sex leikjum sínum og hefur enginn leikmaður í deildinni skorað fleiri þriggja stiga körfur. Magnús hefur sett niður 25 þrista, eða 4,2 að meðaltali í leik. Magnús er stigahæsti leikmaður Keflavíkurliðsins, en hann hefur skorað aðeins meira en Steven Gerard Dagustino. Magnús er þar með eini íslenski leikmaðurinn sem er stigahæstur hjá sínu liði í Iceland Express-deildinni en öll hin ellefu lið deildarinnar eru með erlendan leikmann í fararbroddi. Þórsarinn Darrin Govens er langstigahæsti leikmaður deildarinnar, en hann hefur skorað 19 stigum meira en næsti maður og er með 29,0 stig að meðaltali í leik. ÍR-ingurinn Nemanja Sovic er í 2. sætinu með 25,8 stig að meðaltali í leik.
Dominos-deild karla Mest lesið Gunnlaugur æfir með þeim besta í heimi fyrir U.S. Open Golf Phil Mickelson rekinn úr klúbbi fyrir að snerta konu óviðeigandi Golf Grafarþögn í útsendingu Suður-Afríku eftir leik Fótbolti Bestu-deildarpar á von á barni saman Íslenski boltinn Afhjúpa minningarstein Steina Gísla Íslenski boltinn Lélegasti framherji mótsins strax fundinn Sport Hver er flottasta treyjan á HM? Fótbolti Sjáðu Elísabetu vinna titilinn með fjögurra sentímetra mun Sport Maður dagsins á HM: Jafnfætti prinsinn jafnaði sig í tæka tíð Fótbolti Þetta þarf að gerast svo við fáum leik á milli Messi og Ronaldo á HM Fótbolti Fleiri fréttir Jesús áfram í Stjörnunni Stuðningsmenn Knicks köstuðu eggi í Wembanyama Elvar og félagar fara 2-0 undir heim til Kanaríeyja Baldur tekur eina stærstu stjörnu Stjörnuliðsins yfir á Álftanes Stólarnir ráða Ísak Wíum Ármann fær sæti í Bónus deildinni og framlengir við Jónínu „Heimskasta körfuboltalið í sögu mannkyns“ Söguleg endurkoma Knicks LeBron James um „Geitina“ í NBA: Enginn betri en ég Wembanyama sleppur við refsingu Kolbrún snýr aftur heim og semur við Tindastól Steinar áfram hjá Ármanni Hamar og Þór hætta samstarfi Martin í úrvalsliðinu Martin spilar til úrslita um þýska meistaratitilinn Elvar og félagar lentu í gininu á Börsungum í kvöld „Ég hef alltaf komið sterkari til baka“ „Ég fer í góðu og þeir skilja mína ákvörðun“ KR blæs í herlúðra: Sara Rún og Emma Sóldís í Vesturbæinn Baulað á Trump í New York Spurs minnka muninn í úrslitaeinvíginu Þrefaldur NBA-meistari með Jordan látinn Ekkert teiti því Trump mætir á völlinn Martin á leið í oddaleik Elvar og félagar hentu meisturum Real Madrid úr leik Tryggvi úr leik þrátt fyrir góða frammistöðu Bræðurnir áfram og meistararnir halda þéttum kjarna Dæmdur í lífstíðarbann frá öllum NBA leikjum Stórveldið svaraði fyrir sig á Tenerife Lokuðu á Martin og héldu sér á lífi Sjá meira