Lífið

Dásamlegt dömuboð

myndir/sigurjón ragnar
Í gærkvöldi fór fram dásamlegt dömuboð á Nauthóli í tilefni af komu Skin Doctors, nýrrar snyrtivörulínu á markað hérlendis.

Rúmlega eitthundrað og fimmtíu konur mættu til að kynna sér vörurnar, dreypa á Moët & Chandon kampavíni og borða dýrindis sushi og tapas sem Eyþór Rúnarsson, yfirmatreiðslumaður á Nauthóli reiddi fram af sinni alkunnu snilld.

Konurnar fengu að kynnast hinum ýmsu vöruflokkum en þar má meðal annars nefna Instant Facelift sem ku vera andlitslyfting sem tekur aðeins fimm mínútur.

Nánari upplýsingar um Skin Doctors er að finna á Facebook síðu þeirra:

https://www.facebook.com/Skindoctors.is






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.