Fjögur lið eiga enn möguleika á sæti í undanúrslitum Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar 25. janúar 2012 13:00 Þjóðverjar standa best að vígi fyrir leiki dagsin en eiga erfiðan leik gegn Póllandi. Nordic Photos / Getty Images
Lokaumferð milliriðlakeppninnar fer fram á EM í handbolta í dag og ríkir talsverð spenna í milliriðli 1 um hvaða lið muni fylgja Serbíu áfram í undanúrslit. Fjögur lið eiga enn möguleika á að komast áfram - Þýskaland (5 stig), Danmörk (4 stig), Pólland (3 stig) og Makedónía (3 stig). Þjóðverjar standa best að vígi enda dugir þeim sigur gegn Pólverjum í fyrsta leik dagsins til að komast áfram. Skiptir þá engu hvernig aðrir leikir dagsins fara. Pólland er aðeins með þrjú stig í riðlinum en sigur gegn Þýskalandi og fimm stig gætu dugað Pólverjum til að komast áfram - en aðeins ef úrslit í öðrum leikjum verða liðinu hagstæð. Danir verða helst að tapa fyrir Svíum og Makedónía mætti ekki vinna Serbíu. Sú staða gæti reyndar komið upp að Þýskaland, Danmörk, Makedónía og Pólland endi öll með fimm stig og flækjast þá málin verulega. Makedónía á reyndar ekki möguleika á að komast áfram verði það niðurstaðan en hin þrjú löndin ættu öll enn möguleika. Makedóníumenn komast áfram ef þeir vinna Serba, Danir tapa fyrir Svíum og Pólverjar vinna Þjóðverja með 1 eða 2 mörkum. Möguleikar Dana felast fyrst og fremst í því að vinna Svíþjóð og treysta á að Þýskaland vinni ekki Pólverja.Úrslit, dagskrá og staða í öllum leikjum.
Mest lesið Sagði fyrst nei við beiðni Kjartans: „Menn hálf skammast sín“ Körfubolti Brenndi á sér höndina áður en hann kýldi í borðið Sport Mætti til leiks berfættur og ber að ofan í snjókomunni Sport Hefur aldrei séð svona ofbeldi: „Þetta var allt of mikið“ Sport Moyes ældi alla leiðina til Eyja Enski boltinn Barði sig til blóðs eftir tap á HM Sport Jafnt í ótrúlegum átta marka leik á Old Trafford Enski boltinn Romano segir fólki að fylgjast með Alberti í janúar Fótbolti „Í dag er dagurinn sem þú fæddist, í dag er dagurinn sem þú munt deyja“ Enski boltinn Mbappé vann PSG og fær níu milljarða Fótbolti Fleiri fréttir Halda Orra og Sporting engin bönd Viktor Gísli stóð vaktina er fullkomið gengi Börsunga hélt áfram Snorri kynnir EM-fara í vikunni Mega handvelja lið utan Evrópu inn í Meistaradeildina EM ekki í hættu Á hækjum á milli leikja og þoldi sífellt verri sársauka Uppgjörið: Haukar - Fram 25-27 | Meistararnir unnu toppliðið í naglbít „Fannst við bara lélegir í kvöld“ Botnliðið hrellti Aftureldingu og KA lék sér að eldinum Flott endurkoma FH og Valur vann í 83 marka leik Elliði framlengir dvölina í Gummersbach Þórir í skýjunum: „Sit með lítið tár í augnkróknum“ Tíu mörk frá Hauki ekki nóg Reistad valin best og Katrine Lunde besti markvörðurinn Ómar Ingi fiskaði vítið sem gaf sigurmarkið í Íslendingaslag Katrine Lunde fékk draumaendinn sinn og þær norsku urðu heimsmeistarar Einar Bragi fór mikinn í mikilvægum sigri Afhentu Akureyringum fimmta tapið í röð Donni markahæstur í dramatískum sigri Frakkar fengu bronsið eftir spennutrylli Eyjakonur gerðu sér góða ferð upp á land Segir Norðmönnum að setja hana í karlalandsliðið sitt Íslendingaliðin unnu öll og skipa sér í þrjú efstu sætin Bjarki Már raðaði inn mörkunum í seinni hálfleik Stelpurnar okkar mættar aftur í Olís deildina Forsetinn mætir ekki á úrslitaleik HM kvenna Leik lokið: Haukar - KA/Þór 35-20 | Þriggja leikja taphrinu lokið með fimmtán marka sigri Gerir miklar kröfur til sjálfs síns: „Það má aldrei slaka á“ Stjarna Guðjóns fer varlega og mun ekki mæta Íslandi á EM Spara margar milljónir vegna ráðningar Rúnars Sjá meira