Króatar sýndu styrk sinn á móti Frökkum | Frakkar verja ekki titilinn Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 24. janúar 2012 18:48 Mynd/AFP
Mirko Alilović, markvörður Króata, lokaði markinu á úrslitastundu þegar Króatar unnu öruggan sjö marka sigur á Frökkum, 29-22, í öðrum leik dagsins í milliriðli tvö á Evrópumótinu í handbolta í Serbíu. Alilović fór í gang í lokin eins og á móti Íslandi og kláraði hreinlega franska liðið. Spánverjar hafa sjö stig í riðlinum og eru komnir áfram en Króatar eru með sex stig og gætu bæst í hópinn fyrir lok kvöldsins. Slóvenar geta tryggt Króatíu sæti í undanúrslitunum með því að vinna Ungverja í lokaleik kvöldsins. Vinni Ungverjar hinsvegar þá spila Króatía og Ungverjaland hreinan úrslitaleik um sætið á morgun. Frakkar hafa unnið undanfarin fjögur stórmót og urðu Evrópumeistarar í Austurríki fyrir tveimur árum. Þetta tap þýðir hinsvegar að liðið er bara með tvö stig og á ekki lengur möguleika á því að spila um verðlaun á mótinu. Marko Kopljar og Ivan Čupić skoruðu báðir sjö mörk en Kopljar átti frábæran leik. Blaženko Lacković skoraði fjögur mörk. Jérôme Fernandez og Xavier Barachet voru markahæstir hjá Frökkum með fjögur mörk hvor. Króatar voru með frumkvæðið í byrjun leiks og 9-6 yfir þegar 20 mínútur voru búnar af fyrri hálfleiknum. Frakkar skoruðu þá fimm mörk í röð á sjö mínútna kafla og komust í 11-9. Frakkar voru síðan 12-11 yfir í hálfleik. Frakkar voru áfram með tveggja marka forskot í upphafi seinni hálfleiks en þegar tuttugu mínútur voru til leiksloka fór króatíska liðið í gang. Króatar unnu næstu þrettán mínútur 8-2 og komust fimm mörkum yfir, 24-19. Króatar áttu ekki í miklum með að klára leikinn eftir þetta.Úrslit, dagskrá og staðan í öllum riðlum
Mest lesið Åge Hareide látinn Fótbolti „Er því miður kominn í jólafrí“ Handbolti Útilokar ekki breytingar: „Er klárlega að líta í kringum mig“ Körfubolti Davíð sendir hjartnæma kveðju til Hareide Fótbolti Í fyrsta sinn rukkað inn á Fan Zone á HM Fótbolti Dagskráin í dag: Píla og Álftanes með nýjan þjálfara Sport Segir fjórðung í bók Óla ósannan Íslenski boltinn Körfuboltakvöld: Tilþrif tímabilsins til þessa Körfubolti Svona endaði Sambandsdeildin: Finnarnir áfram eftir jafntefli við Palace Fótbolti „Svo lengi sem það er ekki jákvæð og góð umfjöllun um okkur erum við sáttir“ Körfubolti Fleiri fréttir „Er því miður kominn í jólafrí“ „Þetta var mjög skrítinn leikur“ Haukakonur í fjórða sætið KA/Þór - Valur 23-30 | Ótrúlegur viðsnúningur gestanna Ómar óstöðvandi og Magdeburg í undanúrslit Ómar Ingi fær meiri ábyrgð og tekur við kyndlinum af Aroni Ekkert stríð við Porto og einstakur Þorsteinn nítjándi maður Síðasta verkefni reyndist dýrt fyrir Sigvalda Teitur fer á EM sem hornamaður í stað Sigvalda Snorri kynnti EM-strákana okkar Hleyptu Þorsteini ekki heim og vilja ekki að hann fari á EM Kári og Logi vilja henda Ými út úr landsliðinu Sagður utan hóps fyrir Bjarka og Orra Geggjaðar Eyjakonur á toppinn Þorsteinn Leó að ná sér „langt á undan áætlun“ Birtu tölvupóst þar sem efast er um heilsu forseta IHF Valdi ekki eigin leikmann í landsliðið Halda Orra og Sporting engin bönd Viktor Gísli stóð vaktina er fullkomið gengi Börsunga hélt áfram Snorri kynnir EM-fara í vikunni Mega handvelja lið utan Evrópu inn í Meistaradeildina EM ekki í hættu Á hækjum á milli leikja og þoldi sífellt verri sársauka Uppgjörið: Haukar - Fram 25-27 | Meistararnir unnu toppliðið í naglbít „Fannst við bara lélegir í kvöld“ Botnliðið hrellti Aftureldingu og KA lék sér að eldinum Flott endurkoma FH og Valur vann í 83 marka leik Elliði framlengir dvölina í Gummersbach Þórir í skýjunum: „Sit með lítið tár í augnkróknum“ Tíu mörk frá Hauki ekki nóg Sjá meira