Þórsarar skelltu nýkrýndum deildarmeisturum Grindavíkur | Komnir í 2. sætið Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 9. mars 2012 20:58 Darrin Govens. Mynd/Hag
Þórsarar úr Þorlákshöfn eru komnir upp í annað sæti Iceland Express deildar karla eftir tíu stiga sigur á nýkrýndum deildarmeisturum Grindavíkur, 79-69, í Icelandic Glacial höllinni í Þorlákshöfn í kvöld. Grindavík var búið að vinna tíu deildarleiki í röð fyrir leikinn í kvöld og þetta var aðeins annað deildartap Grindvíkinga á tímabilinu. Þórsliðið hefur verið í miklum ham undir stjórn Benedikts Guðmundssonar að undanförnu en þetta var fimmti sigur liðsins í röð. Darrin Govens skoraði 27 stig fyrir liðið í kvöld og Blagoj Janev var með 20 stig og 10 fráköst. J´Nathan Bullock skoraði 18 stig fyrir Grindavík og Giordan Watson var með 17 stig. Grindvíkingar komust mest sjö stigum yfir í fyrsta leikhlutanum 16-9, en Þórsliðið var búið að minnka muninn niður í þrjú stig fyrir lok leikhlutans, 16-13. Grindvíkingar komust átta stigum yfir í upphafi annars leikhluta, 22-14, en tveimur mínútum síðar var staðan orðin jöfn 24-24. Leikurinn hélst jafn fram að hálfleik en staðan var 39-39 í leikhléi. Darrin Govens var búinn að skora 17 stig og gefa 4 stoðsendingar í hálfleik. Þórsarar skoruðu 9 fyrstu stig seinni hálfleiksins og komust í 45-36. J´Nathan Bullock braut loksins ísinn fyrir Grindavík með þriggja stiga körfu þegar tæpar þrjár mínútur voru liðnar af þriðja leikhlutanum. Þórsliðið lét þessa forystu ekki af hendi. Þór var 59-48 yfir fyrir lokaleikhlutann og vann að lokum tíu stiga sigur.Þór Þorlákshöfn-Grindavík 79-69 (13-16, 23-20, 23-12, 20-21)Þór Þorlákshöfn: Darrin Govens 27/7 fráköst/5 stoðsendingar, Blagoj Janev 20/10 fráköst, Guðmundur Jónsson 14/4 fráköst, Matthew James Hairston 7/10 fráköst/7 stoðsendingar, Baldur Þór Ragnarsson 4, Grétar Ingi Erlendsson 4, Darri Hilmarsson 2, Þorsteinn Már Ragnarsson 1.Grindavík: J'Nathan Bullock 18/7 fráköst, Giordan Watson 17/4 fráköst, Jóhann Árni Ólafsson 7/4 fráköst, Sigurður Gunnar Þorsteinsson 7/6 fráköst, Björn Steinar Brynjólfsson 6, Ryan Pettinella 5/4 fráköst, Páll Axel Vilbergsson 3, Ólafur Ólafsson 2, Ómar Örn Sævarsson 2, Þorleifur Ólafsson 2.
Dominos-deild karla Mest lesið Gunnlaugur æfir með þeim besta í heimi fyrir U.S. Open Golf Ung frjálsíþróttakona lést í fríi með fjölskyldunni Sport Partey ekki hleypt inn í Kanada og missir af fyrsta leik Gana á HM Fótbolti Afhjúpa minningarstein Steina Gísla Íslenski boltinn Grafarþögn í útsendingu Suður-Afríku eftir leik Fótbolti Phil Mickelson rekinn úr klúbbi fyrir að snerta konu óviðeigandi Golf Lélegasti framherji mótsins strax fundinn Sport Bestu-deildarpar á von á barni saman Íslenski boltinn Almar ekki í kassanum Fótbolti Hoppuðu og skríktu af gleði þegar símtalið loksins barst Fótbolti Fleiri fréttir Jesús áfram í Stjörnunni Stuðningsmenn Knicks köstuðu eggi í Wembanyama Elvar og félagar fara 2-0 undir heim til Kanaríeyja Baldur tekur eina stærstu stjörnu Stjörnuliðsins yfir á Álftanes Stólarnir ráða Ísak Wíum Ármann fær sæti í Bónus deildinni og framlengir við Jónínu „Heimskasta körfuboltalið í sögu mannkyns“ Söguleg endurkoma Knicks LeBron James um „Geitina“ í NBA: Enginn betri en ég Wembanyama sleppur við refsingu Kolbrún snýr aftur heim og semur við Tindastól Steinar áfram hjá Ármanni Hamar og Þór hætta samstarfi Martin í úrvalsliðinu Martin spilar til úrslita um þýska meistaratitilinn Elvar og félagar lentu í gininu á Börsungum í kvöld „Ég hef alltaf komið sterkari til baka“ „Ég fer í góðu og þeir skilja mína ákvörðun“ KR blæs í herlúðra: Sara Rún og Emma Sóldís í Vesturbæinn Baulað á Trump í New York Spurs minnka muninn í úrslitaeinvíginu Þrefaldur NBA-meistari með Jordan látinn Ekkert teiti því Trump mætir á völlinn Martin á leið í oddaleik Elvar og félagar hentu meisturum Real Madrid úr leik Tryggvi úr leik þrátt fyrir góða frammistöðu Bræðurnir áfram og meistararnir halda þéttum kjarna Dæmdur í lífstíðarbann frá öllum NBA leikjum Stórveldið svaraði fyrir sig á Tenerife Lokuðu á Martin og héldu sér á lífi Sjá meira