Snæfellingar aftur á sigurbraut | Fjölnir næstum því búið að stela sigrinum Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 9. mars 2012 20:53 Marquis Hall. Mynd/Stefán
Snæfell endaði þriggja leikja taphrinu sína í Iceland Express deild karla í körfubolta í kvöld með því að vinna nauman 89-86 sigur á Fjölni í Stykkishólmi. Snæfellsliðið var með gott forskot fram eftir öllum leik en var næstum því búið að kasta frá sér sigrinum í lokin. Quincy Hankins-Cole skoraði 18 stig fyrir Snæfell þar á meðal gríðarlega mikilvæga körfu níu sekúndum fyrir leikslok. Marquis Hall var atkvæðamestur með 26 stig og 7 stoðsendingar og Jón Ólafur Jónsson skoraði 17 stig. Snæfellingar tóku frumkvæðið í upphafi leiks, komust í 13-4 og 19-6 og voru tíu stigum yfir eftir fyrsta leikhlutann, 24-14. Marquis Hall skoraði 11 stig í fyrsta leikhlutanum. Snæfell vann annan leikhlutann 23-20 sem skilaði Hólmurum þrettán stiga forskoti í hálfleik, 47-34. Fjölnir kom muninum niður í sjö sig með góðum kafla í upphafi seinni hálfleiks en munurinn var aftur orðinn 11 stig fyrir lokaleikhlutann, 67-56. Fjölnisliðið gerði enn betur í upphafi fjórða leikhlutans og náði að jafna metin í 74-74 þegar fimm mínútur voru til leikslok. Liðin skiptust á að hafa forystuna á æsispennandi lokamínútum en Snæfellsliðið hafði betur og vann langþráðan sigur í jöfnum leik.Snæfell-Fjölnir 89-86 (24-14, 23-20, 20-22, 22-30)Snæfell: Marquis Sheldon Hall 26/7 stoðsendingar, Quincy Hankins-Cole 18/13 fráköst/6 stoðsendingar, Jón Ólafur Jónsson 17/7 fráköst, Sveinn Arnar Davidsson 15, Pálmi Freyr Sigurgeirsson 6/6 fráköst, Hafþór Ingi Gunnarsson 4, Ólafur Torfason 2, Óskar Hjartarson 1.Fjölnir: Calvin O'Neal 31/4 fráköst, Nathan Walkup 16/9 fráköst, Arnþór Freyr Guðmundsson 15, Hjalti Vilhjálmsson 11/5 fráköst, Jón Sverrisson 10/9 fráköst, Björgvin Hafþór Ríkharðsson 3.
Dominos-deild karla Mest lesið Gunnlaugur æfir með þeim besta í heimi fyrir U.S. Open Golf Phil Mickelson rekinn úr klúbbi fyrir að snerta konu óviðeigandi Golf Grafarþögn í útsendingu Suður-Afríku eftir leik Fótbolti Afhjúpa minningarstein Steina Gísla Íslenski boltinn Bestu-deildarpar á von á barni saman Íslenski boltinn Lélegasti framherji mótsins strax fundinn Sport Hver er flottasta treyjan á HM? Fótbolti Almar ekki í kassanum Fótbolti Sjáðu Elísabetu vinna titilinn með fjögurra sentímetra mun Sport Hoppuðu og skríktu af gleði þegar símtalið loksins barst Fótbolti Fleiri fréttir Jesús áfram í Stjörnunni Stuðningsmenn Knicks köstuðu eggi í Wembanyama Elvar og félagar fara 2-0 undir heim til Kanaríeyja Baldur tekur eina stærstu stjörnu Stjörnuliðsins yfir á Álftanes Stólarnir ráða Ísak Wíum Ármann fær sæti í Bónus deildinni og framlengir við Jónínu „Heimskasta körfuboltalið í sögu mannkyns“ Söguleg endurkoma Knicks LeBron James um „Geitina“ í NBA: Enginn betri en ég Wembanyama sleppur við refsingu Kolbrún snýr aftur heim og semur við Tindastól Steinar áfram hjá Ármanni Hamar og Þór hætta samstarfi Martin í úrvalsliðinu Martin spilar til úrslita um þýska meistaratitilinn Elvar og félagar lentu í gininu á Börsungum í kvöld „Ég hef alltaf komið sterkari til baka“ „Ég fer í góðu og þeir skilja mína ákvörðun“ KR blæs í herlúðra: Sara Rún og Emma Sóldís í Vesturbæinn Baulað á Trump í New York Spurs minnka muninn í úrslitaeinvíginu Þrefaldur NBA-meistari með Jordan látinn Ekkert teiti því Trump mætir á völlinn Martin á leið í oddaleik Elvar og félagar hentu meisturum Real Madrid úr leik Tryggvi úr leik þrátt fyrir góða frammistöðu Bræðurnir áfram og meistararnir halda þéttum kjarna Dæmdur í lífstíðarbann frá öllum NBA leikjum Stórveldið svaraði fyrir sig á Tenerife Lokuðu á Martin og héldu sér á lífi Sjá meira