Vilhelm: Deutsche Bank stöðvaði lán "með öllum ráðum“ 9. mars 2012 11:06 Vilhelm Þorsteinsson, er hann kom fyrir Landsdóm í dag. Mynd/GVA
Vilhelm Þorsteinsson, f. forstöðumaður fjárstýringar Glitnis, sagði fyrir Landsdómi í dag að stór hópur starfsmanna Glitnis hefði unnið að því fram eftir öllu ári 2008 að tryggja fjármögnun bankans. Hann sagði að lánalína frá þýska risabankanum Deutsche Bank hefði reynst ótryggari en talið hefði verið að lokum, þar sem litið hefði verið á hana sem neyðarlánalínu sem mögulegt væri að grípa til í erfiðri stöðu. „Þegar við gengum á bankann, um hvers vegna það gengi ekki [að draga á línuna innsk. blm.] þá fengum við þau svör að bankinn myndi gera allt til þess að koma í veg fyrir að þetta gengi eftir," sagði Vilhelm. Hann sagði Glitni hafi verið langt kominn með að selja eignir bankans í Noregi til Nordea, en hann hefði horfið frá því eftir fall Lehman Brothers 15 september. Þá hefði einnig verið unnið að því hörðum höndum, að fá trúverðugan fjárfestingasjóð að bankanum sem hluthafa, en það hefði dottið upp fyrir sömuleiðis, vegna erfiðra aðstæðna. Þorsteinn Már Baldvinsson, f. stjórnarformaður Glitnis, hélt því fram í gær að þetta hefði getað losað um 900 milljónir evra. Samtals munu þrettán vitni koma fyrir dóminn í dag, þar á meðal Össur Skarphéðinsson utanríkisráðherra og Jóhanna Sigurðardóttir forsætisráðherra.
Landsdómur Mest lesið Kapphlaupið hafið og hann hafi áhyggjur af öryggi þeirra minni Innlent Íbúum ráðlagt að sjóða neysluvatn Innlent „Hvernig sérðu að þú sért virkilega að fá já?“ Innlent „Þetta er ákall“ Innlent „Þetta er algjörlega óviðunandi“ Innlent „Þetta er okkar gjöf til ríkisstjórnarinnar“ Innlent Vildi meina að útbrotin væru eftir varafyllingar Innlent Valgerður fer aftur frá SÁÁ Innlent Hvalfjarðargöng opin á nýjan leik Innlent Herlið á leiðinni og Íslendingar hafi varann á Erlent Fleiri fréttir „Þetta er ákall“ Íbúum ráðlagt að sjóða neysluvatn Kapphlaupið hafið og hann hafi áhyggjur af öryggi þeirra minni Vildi meina að útbrotin væru eftir varafyllingar „Hvernig sérðu að þú sért virkilega að fá já?“ „Þetta er okkar gjöf til ríkisstjórnarinnar“ „Þetta er algjörlega óviðunandi“ Valgerður fer aftur frá SÁÁ Hefja snjóframleiðslu á næstu dögum Loka vefsíðum tímabundið í varúðarskyni Fá mál á þingi: „Fórnarlömb velgengni“ fá kaldar kveðjur frá Diljá Skorar á landlækni að leiðrétta rangfærslur Alvarlegur veikleiki hjá fjölda vefsíðna Sláandi hversu margir telji ofbeldi hluta af kynlífi Jón Gnarr lætur af varaformennsku og tveimur varasætum Myndasyrpa: Nýr skáli fluttur í Þórsmörk Klæmdist óvart við fjórtán ára og var sýknaður Stærsti dagurinn í dekkjaskiptum „Mjög óheillavænleg þróun“ Efast um að vilja Alþingis sé fylgt í jafnlaunamálum Birtingarmyndir kynferðisofbeldis gegn ungum konum að breytast Fimm ráðnir aftur eftir uppsagnirnar Vilja rannsaka vinnubrögð sérstaks saksóknara Hafi nauðgað meðvitundarlausri sambýliskonunni Atvinnuleysi dróst saman Töpuðu bardaganum, liðþjálfanum og prestinum Sífellt erfiðara fyrir mörg heimili að ná endum saman Hélt hún myndi deyja í útskriftarferð til Portúgal Skoða áætlunarsiglingar milli Skotlands og Íslands Telur allt ógirt land tekið eignarnámi með dómi Sjá meira