Klæmdist óvart við fjórtán ára og var sýknaður Árni Sæberg skrifar 21. október 2026 13:21 Maðurinn átti í kynferðislegum samskiptum við stúlkuna á Snapchat. EPA/HAYOUNG JEON Karlmaður hefur verið sýknaður af ákæru fyrir kynferðisbrot gegn fjórtán ára stúlku, með því að hafa ítrekað sent henni kynferðisleg skilaboð og mælt sér mót við hana í því skyni að hafa við hana samræði eða önnur kynferðismök. Dómurinn taldi ekki sannað að maðurinn hafi vitað að um barn væri að ræða.
Dómur þess efnis var kveðinn upp í Héraðsdómi Reykjavíkur þann 14. október og birtur í dag. Í dóminum segir að ekki hafi verið ágreiningur um að maðurinn hafi átt í kynferðislegum samskiptum við stúlkuna í gegnum samskiptamiðilinn Snapchat eins og í ákæru greinir árið 2022. Hins vegar hafi verið deilt um hvort hann hafi vitað um aldur stúlkunnar og hvort hann hafi mælt sér mót við hana í því skyni að eiga við hana kynferðismök. Framburður stöðugur og lögregla talaði ekki við vitni Maðurinn hafi verið staðfastur í framburði sínum um að honum hafi ekki verið kunnugt um aldur stúlkunnar fyrr en daginn sem hann lokaði fyrir samskipti við hana. Ákæruvaldið hafi ekki hrakið framburð hans þess efnis með framlögðum gögnum. Í málinu hafi ekki legið fyrir framburður nafngreindrar konu sem maðurinn hafi sagt hafa upplýst sig um aldur stúlkunnar, sem síðan hafi leitt til þess að hann lokaði á samskipti við hana. „Verður ákæruvaldið að bera hallann af því að framburðar umræddrar konu hafi ekki verið aflað. Eru ekki efni til annars en að leggja til grundvallar frásögn ákærða um að hann hafi lokað fyrir samskipti við brotaþola eftir að umrædd kona hafi rætt aldur hennar við hann.“ Í málinu hafi ekki annað legið fyrir um vitneskju mannsins um aldur stúlkunnar en frásögn hennar og vinkonu hennar, sem bar vitni í málinu. Ósamræmi í framburði stúlknanna Þá segir í dóminum að þegar stúlkan kom ásamt móður sinni á lögreglustöð til að tilkynna um háttsemi mannsins hafi hún sagst eiga nær öll samskiptin við manninn. Á meðal samskiptanna sem móðir stúlkunnar sendi lögreglu hafi engin skilaboð verið þar sem stúlkan greinir frá aldri sínum. Í framburði sínum hafi stúlkan sagst ekki hafa tekið skjáskot af þessum tilteknu samskiptum, sem virðist mega skilja svo að þau hafi ekki varðveist í samskiptasögu hennar á Snapchat. Hins vegar hafi vinkonan borið að hún hafi séð þessi samskipti í síma stúlkunnar þegar þær voru að skoða síma stúlkunnar saman og afla sönnunargagna eftir að maðurinn hafði slitið öllum samskiptum við stúlkuna. „Gætir þarna ósamræmis í framburðum vinkvennanna. Enn fremur er óútskýrt hvers vegna þessi ætluðu skilaboð hafi ekki verið á meðal þeirra gagna sem lögreglu voru afhent úr síma brotaþola hafi þau raunverulega verið þar og [vinkonan] séð þau.“ 08 eða 14 ára? Þá segir að einnig gæti ósamræmis í frásögn stúlkunnar og vinkonunnar um það hvernig vinkonan hafi vitað að stúlkan hafi greint manninum frá aldri sínum. Stúlkan hafi greint frá því í skýrslu sinni að vinkonan hafi verið með henni þegar hún hafi skýrt manninum frá aldri sínum og hafi því orðið vitni að því. Fyrir dómi hafi vinkonan hins vegar aldrei sagst hafa verið með stúlkunni þegar hún átti í samskiptum við manninn, heldur hafi hún einungis séð samskiptasögu þeirra í einu lagi eftir að maðurinn sleit samskiptunum. „Ósamræmi er enn fremur á milli brotaþola og [vinkonunnar] varðandi með hvaða hætti brotaþoli hafi greint ákærða frá aldri sínum, en brotaþoli kvaðst hafa ritað „Ég er 08“ en [vinkonan] kvaðst hafa lesið skilaboðin „Ég er 14 ára“.“ Atvik málsins áttu sér stað árið 2022 og því ljóst að manneskja fædd árið 2008 var á fjórtánda ári á umræddum tíma. Þá segir að loks gæti misræmis í því hvenær stúlkan hafi greint manninum frá aldri sínum, en fyrir dómi hafi vinkonan sagst hafa séð að skilaboð stúlkunnar þess efnis hafi verið í upphafi samskipta hennar við manninn, en stúlkan hafi hins vegar skýrt frá því í framburði sínum að það hafi ekki verið í upphafi samskiptanna, heldur hafi það verið einhvern tímann á fyrsta mánuði samskiptanna. Hafði ekki ásetning til að klæmast við barn Þrátt fyrir að framburðir stúlkunnar og vinkonunnar hafi í sjálfu sér verið trúverðugir þá dragi framangreind atriði úr vægi þeirra við sönnunarmat í málinu gegn staðföstum framburði mannsins. Horfa verði einnig til þess að vinkonan sé vinkona stúlkunnar og hafi sagst fyrir dómi alltaf myndu líta á hana sem systur sína. Tengsl þessi veiki óhjákvæmilega framburð vitnisins. Þá segir að stúlkan hafi greint frá því í skýrslu sinni að fæðingarár hennar kæmi fram á Snapchat-reikningi hennar. Ákæruvaldið hafi hins vegar engin gögn lagt fram til staðfestingar á þeirri fullyrðingu. Ekkert í framlögðum samskiptum stúlkunnar við manninn þyki þess eðlis að maðurinn hafi út frá þeim gögnum átt að gera sér grein fyrir aldri stúlkunnar. „Samkvæmt heildstæðu mati á öllu framangreindu þykir ákæruvaldið ekki hafa sýnt framá, svo hafið sé yfir skynsamlegan vafa, að ákærði hafi vitað um aldur brotaþola. Verðurákærði í samræmi við það ekki sakfelldur fyrir ásetningsbrot.“ Ekki gáleysi að ganga ekki úr skugga um aldurinn Þá komi til skoðunar hvort maðurinn hafi sýnt af sér gáleysi varðandi aldur stúlkunnar í skilningi ákvæðis hegningarlaga um kynferðisbrot gegn barni af gáleysi. Stúlkan hafi aldrei sent manninum mynd af andliti sínu og samskiptin þeirra á milli beri með sér að hafa verið innihaldsrýr og takmörkuð, sem styðji framburð mannsins um að hann hafi átt í samskiptum við fjölda notenda á Snapchat til að viðhalda daglegri samfellu samskipta („streak“), en lítið hafi verið á bak við það. Ákæruvaldið hafi ekki dregið það í efa. Sum skilaboðanna eru myndir af hundi ákærða, barnaleikfangi og bíl. Heilt yfir bera samskiptin ekki með sér að hafa komist á það stig að ákærði og brotaþoli hafi kynnst að neinu marki og verða þau ekki skilin svo að ákærði hafi mælt sér mót við brotaþola, eins og í ákæru greinir, þó að hann hafi gefið í skyn að þau kynnu að hittast og lýst kynferðislegum fantasíum í því samhengi. Þær lýsingar á kynferðislegum fantasíum voru meðal annars svohljóðandi: „Hvernig eg kyssi þig, stryk þer, held fast i hári, strýk lærunum og gríp í þau, snerti þig utan frá, verður blaut í gegn áður en eg tek þig ur g strengnum“ „Kann mjöög vel á snipin, hvenær og hvernig puttarnir fara inn og hreyfingarnar/Læt þig halda i mig a meðan, en ekki runka, bara svo þu finnir fyrir mer harðna yfir þer blotna og stynja“ „Svo næst sæki eg þig a i8 til að halla þer fram á hoodið“ Áhugi á bílum renni stoðum undir að hann héldi að stúlkan væri eldri Þá segir í dóminum að stúlkan hafi skýrt frá því að hún hefði mikinn áhuga á bílum og hluti samskiptanna hafi lotið að bíl mannsins. Það þyki fremur til stuðnings þeirri ályktun mannsins að stúlkan væri 18 til 19 ára gömul. „Ákærði vísaði einnig til þess að hann hafi ráðið aldur brotaþola af myndum sem hún hafi sent honum, þar sem ekki sást í andlit hennar, en engar umræddra mynda eru á meðal gagna málsins og því ekki forsendur til að vefengja framburð ákærða að þessu leyti út frá gögnum málsins. Að mati dómsins hefur ákæruvaldið ekki sýnt fram á að ákærði hafi haft sérstakt tilefni til að ætla að brotaþoli kynni að vera yngri en hann kveðst hafa talið hana vera. Eru því ekki efni til að meta honum það til saknæms gáleysis að hafa ekki gengið sérstaklega úr skugga um það í samskiptum þeirra hvort hún væri ekki örugglega eldri en 14 ára.“ Með vísan til þessa var maðurinn sýknaður af öllum kröfum ákæruvaldsins og einkaréttarkröfu stúlkunnar upp á 1,5 milljónir króna vísað frá dómi. Allur sakarkostnaður, um 1,6 milljónir króna, greiðist úr ríkissjóði.
Dómsmál Kynferðisofbeldi Ofbeldi gegn börnum Samfélagsmiðlar Mest lesið Herlið á leiðinni og Íslendingar hafi varann á Erlent Telur allt ógirt land tekið eignarnámi með dómi Innlent Fær hvorki bætur né afsökunarbeiðni eftir að hafa stungið sig á saumnál Neytendur „Hvaða skaða hef ég valdið, Elliði?“ Innlent Hélt hún myndi deyja í útskriftarferð til Portúgal Innlent „Mjög óheillavænleg þróun“ Innlent Töpuðu bardaganum, liðþjálfanum og prestinum Innlent Sláandi hversu margir telji ofbeldi hluta af kynlífi Innlent Fimm ráðnir aftur eftir uppsagnirnar Innlent Skafið og saltað Veður Fleiri fréttir Loka vefsíðum tímabundið í varúðarskyni Fá mál á þingi: „Fórnarlömb velgengni“ fá kaldar kveðjur frá Diljá Skorar á landlækni að leiðrétta rangfærslur Alvarlegur veikleiki hjá fjölda vefsíðna Sláandi hversu margir telji ofbeldi hluta af kynlífi Jón Gnarr lætur af varaformennsku og tveimur varasætum Myndasyrpa: Nýr skáli fluttur í Þórsmörk Klæmdist óvart við fjórtán ára og var sýknaður Stærsti dagurinn í dekkjaskiptum „Mjög óheillavænleg þróun“ Efast um að vilja Alþingis sé fylgt í jafnlaunamálum Birtingarmyndir kynferðisofbeldis gegn ungum konum að breytast Fimm ráðnir aftur eftir uppsagnirnar Vilja rannsaka vinnubrögð sérstaks saksóknara Hafi nauðgað meðvitundarlausri sambýliskonunni Atvinnuleysi dróst saman Töpuðu bardaganum, liðþjálfanum og prestinum Sífellt erfiðara fyrir mörg heimili að ná endum saman Hélt hún myndi deyja í útskriftarferð til Portúgal Skoða áætlunarsiglingar milli Skotlands og Íslands Telur allt ógirt land tekið eignarnámi með dómi Hvalfjarðargöng opin á nýjan leik Tvö á einu rafmagnshlaupahjóli og flutt á bráðamóttöku „Hvaða skaða hef ég valdið, Elliði?“ Segir lögreglumenn á Vestfjörðum áhyggjufulla Musk setti Úkraínumönnum takmörk á tengingar við Starlink Óhugnanlega margir að leysa vandamálin með töflum „Ég er ekkert að ýja að því, ég er bara að segja það fullum fetum“ Ræddu ofbeldi í skólum í borgarstjórn: Segir kennara vera í legghlífum í vinnunni Sigurvin kallaður út vegna Hildar Sjá meira