Haukar enn á lífi eftir fimm stiga sigur í Seljaskóla Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 15. mars 2012 20:53 Emil Barja lék vel í kvöld. Mynd/Stefán
Haukar eiga enn möguleika á að bjarga sæti sínu í Iceland Express deild karla í körfubolta eftir fimm stiga sigur á ÍR í Seljaskólanum í kvöld, 92-87, en úrslit annarra leikja þýddu að Haukarnir hefðu fallið með tapi. Haukar eru nú fjórum stigum á eftir Fjölni og ÍR þegar tvær umferðir og fjögur stig eru eftir í pottinum en búa að því að þeir eru með betri innbyrðisstöðu gegn báðum liðunum. Christopher Smith skoraði 25 stig fyrir Hauka, Emil Barja var með 19 stig og Alik Joseph-Pauline bætti við 15 stigum, 10 fráköstum og 7 stoðsendingum. Robert Jarvis skoraði 26 stig fyrir ÍR og Rodney Alexander var með 21 stig og 11 fráköst. Haukar tóku frumkvæðið í byrjun leiks, komust í 6-2 og 12-5 og voru 16-10 yfir þegar fyrsti leikhlutinn var hálfnaður. ÍR-ingar minnkuðu muninn niður í eitt stig en Haukar voru aftur komnir sjö stigum yfir, 26-19, við lok fyrsta leikhlutans. Emil Barja skoraði átta stig í leikhlutanum. Haukaliðið skoraði fimm fyrstu stig annars leikhluta og var síðan komið tólf stigum yfir, 38-26, þegar þrjár mínútur voru liðnar af leikhlutanum. ÍR náði góðum spretti og kom muninum niður í sex stig, 40-34, og það munaði síðan aðeins þremur stigum á liðunum í hálfleik, 49-46, eftir að Breiðhyltingar skoruðu sex síðustu stig hálfleiksins. ÍR-ingar skoruðu sjö fyrstu stig seinni hálfleiksins og voru síðan komnir fjórum stigum yfir, 53-49. ÍR-liðið hélt forystunni fram að lokum leikhlutans en Haukar unnu á og komust síðan einu stigi yfir fyrir lokaleikhlutann, 66-65.. Haukar skoruðu síðan sjö fyrstu stig fjórða leikhluta og komust átta stigum yfir, 73-65. Haukar voru 9 stigum yfir, 86-77, þegar tvær mínútur voru eftir en ÍR-liðið skoraði þá sjö stig í röð á rúmri hálfri mínútu og munurinn vbar kominn niður í tvö stig, 86-84. Haukarnir héldu hinsvegar út og lönduðu lífsnauðsynlegum sigri.ÍR-Haukar 87-92 (19-26, 27-23, 19-17, 22-26)ÍR: Robert Jarvis 26/5 fráköst, Rodney Alexander 21/11 fráköst, Nemanja Sovic 17, Ellert Arnarson 8/5 stoðsendingar, Kristinn Jónasson 6/7 fráköst, Níels Dungal 6/5 fráköst, Eiríkur Önundarson 3/4 fráköst.Haukar: Christopher Smith 25/9 fráköst/4 varin skot, Emil Barja 19/9 fráköst, Alik Joseph-Pauline 15/10 fráköst/7 stoðsendingar, Chavis Lamontz Holmes 12/5 fráköst, Helgi Björn Einarsson 9, Haukur Óskarsson 5, Guðmundur Kári Sævarsson 3, Davíð Páll Hermannsson 2, Örn Sigurðarson 2.
Dominos-deild karla Mest lesið Gunnlaugur æfir með þeim besta í heimi fyrir U.S. Open Golf Grafarþögn í útsendingu Suður-Afríku eftir leik Fótbolti Phil Mickelson rekinn úr klúbbi fyrir að snerta konu óviðeigandi Golf Afhjúpa minningarstein Steina Gísla Íslenski boltinn Lélegasti framherji mótsins strax fundinn Sport Bestu-deildarpar á von á barni saman Íslenski boltinn Almar ekki í kassanum Fótbolti Hoppuðu og skríktu af gleði þegar símtalið loksins barst Fótbolti Hver er flottasta treyjan á HM? Fótbolti Sjáðu Elísabetu vinna titilinn með fjögurra sentímetra mun Sport Fleiri fréttir Jesús áfram í Stjörnunni Stuðningsmenn Knicks köstuðu eggi í Wembanyama Elvar og félagar fara 2-0 undir heim til Kanaríeyja Baldur tekur eina stærstu stjörnu Stjörnuliðsins yfir á Álftanes Stólarnir ráða Ísak Wíum Ármann fær sæti í Bónus deildinni og framlengir við Jónínu „Heimskasta körfuboltalið í sögu mannkyns“ Söguleg endurkoma Knicks LeBron James um „Geitina“ í NBA: Enginn betri en ég Wembanyama sleppur við refsingu Kolbrún snýr aftur heim og semur við Tindastól Steinar áfram hjá Ármanni Hamar og Þór hætta samstarfi Martin í úrvalsliðinu Martin spilar til úrslita um þýska meistaratitilinn Elvar og félagar lentu í gininu á Börsungum í kvöld „Ég hef alltaf komið sterkari til baka“ „Ég fer í góðu og þeir skilja mína ákvörðun“ KR blæs í herlúðra: Sara Rún og Emma Sóldís í Vesturbæinn Baulað á Trump í New York Spurs minnka muninn í úrslitaeinvíginu Þrefaldur NBA-meistari með Jordan látinn Ekkert teiti því Trump mætir á völlinn Martin á leið í oddaleik Elvar og félagar hentu meisturum Real Madrid úr leik Tryggvi úr leik þrátt fyrir góða frammistöðu Bræðurnir áfram og meistararnir halda þéttum kjarna Dæmdur í lífstíðarbann frá öllum NBA leikjum Stórveldið svaraði fyrir sig á Tenerife Lokuðu á Martin og héldu sér á lífi Sjá meira