Ísak og Birgir Leifur deila efsta sætinu þegar keppni er hálfnuð 26. maí 2012 19:44 Birgir Leifur Hafþórsson og Ísak Jasonarson. golf.is
Birgir Leifur Hafþórsson úr GKG og Ísak Jasonarson úr Keili deila efsta sætinu þegar keppni er hálfnuð á fyrsta mótinu á Eimskipsmótaröðinni á þessu keppnistímabili í íslenska golfinu. Birgir fékk örn (-2) á 18. holuna í dag sem hann lék á 3 höggum. Ísak er aðeins 16 ára gamall og kemur hann með látum inn á fyrsta stigamótið. Theodór Emil Karlsson úr Kili Mosfellsbæ og Ottó Sigurðsson úr GKG eru einu höggi á eftir efstu mönnum en þeir léku báðir á 73 höggum. Axel Bóasson úr Keili, Íslandsmeistarinn í höggleik karla, lék á 76 höggum og er hann í 10. sæti. Axel tryggði sér sigurinn á Íslandsmótinu í fyrra á Hólmsvelli í Leiru. Aðstæður voru erfiðar í dag á Suðurnesjunum. Hávaðarok sett svip sinn á keppnina og skor kylfinga var því frekar hátt. Staða efstu manna: 1. -2. Ísak Jasonarson, GK 72 1. -2. Birgir Leifur Hafþórsson GKG 72 3. -4. Theodór Emil Karlsson, GKj., 73 3.-4. Ottó Sigurðsson, GKG 73 5. Kristján Þór Einarsson, GK 74 6.-9. Arnór Ingi Finnbjörnsson, GR 75 6.-9. Pétur Freyr Pétursson, GR 75 6.-9. Rúnar Arnórsson, GK 75
Golf Mest lesið Segir að sigurkarfa Elvars hafi verið ólögleg Körfubolti Vinkonur og liðsfélagar létust á leið heim af æfingu Sport Uppgjörið: Litáen - Ísland 99-82 | Hefndu sín á strákunum okkar Körfubolti Skellur fyrir bankabók HSÍ Handbolti Allir sem hylji munninn verði reknir út af Fótbolti Liverpool rak sérfræðinginn sinn og þá fór allt að gerast Enski boltinn Roy Keane næstum búinn að skemma feril Heimis Fótbolti Ældi svakalega á völlinn en hélt svo áfram að spila Enski boltinn Toppliðið í Litaén hjálpar landsliðinu gegn Íslandi Körfubolti „Ég hef bara miklar áhyggjur af þessu“ Enski boltinn Fleiri fréttir Logi fékk örn eftir að hafa slegið beint í holu af 76 metra færi Gunnlaugur semur við umboðsskrifstofu Schefflers Atvinnukylfingur féll niður um lyftustokk Rory McIlroy: „Fjögur risamót er alveg nóg“ LIV fær heimslistastig þótt mótaröðin uppfylli ekki skilyrði Sjá meira