Berglind á eitt högg á Guðrúnu Brá fyrir lokadaginn Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 9. júní 2012 23:06 Berglind Björnsdóttir Mynd/Golfsamband Íslands/Stefán
Berglind Björnsdóttir úr GR er með eins högg forskot fyrir lokahringinn á Egils Gull mótinu í Vestmannaeyjum en þetta er annað mótið á Eimskipsmótaröðinni. Berglind hefur leikið fyrstu 36 holurnar á 149 höggum eða 9 höggum yfir pari. Berglind bætti sig um átta högg á milli hringa og lék best allra á öðrum hring þar sem hún kom inn á einu höggi yfir pari eftir að hafa tapað átta höggum á fyrsta hringnum. Berglind náði meðal annars erni á fimmtu holu þar sem hún lék holuna á aðeins tveimur höggum. Guðrún Brá Björgvinsdóttir úr GR er í öðru sæti, höggi á eftir Berglindi, en hún lék báða hringina í dag á fimm höggum yfir pari. Guðrún Brá var jöfn Signýju Arnórsdóttur eftir fyrsta hringinn en Signý er nú í 3. til 4. sæti ásamt Ólafíu Þórunni Kristinsdóttur, þremur höggum frá öðru sætinu. Guðrún Brá lék fyrstu fimm holurnar á öðrum hringnum á tveimur höggum undir pari og var komin niður í þrjú högg yfir pari en tapaði síðan sjö höggum á síðustu tólf holunum.Staðan fyrir lokahringinn í kvennaflokki á Egils Gull mótinu: 1. Berglind Björnsdóttir, GR +9 2. Guðrún Brá Björgvinsdóttir, GK +10 3. Signý Arnórsdóttir, GK +13 3. Ólafía Þórunn Kristinsdóttir, GR +13 4. Ragna Björk Ólafsdóttir, GKG +15 5. Eygló Myrra Óskarsdóttir, GO +15 5. Sunna Víðisdóttir, GR +15 8. Ingunn Gunnarsdóttir, GKG +16 9. Tinna Jóhannsdóttir, GK +17 10. Guðrún Pétursdóttir, GR +20
Golf Mest lesið Kemur Íslendingnum unga til varnar Fótbolti „Þetta hefði getað komið fyrir mig“ Fótbolti „Við eigum bara svalasta fyrirliða í Evrópu“ Fótbolti „Allur heimurinn veit hvað þessir leikmenn gera“ Handbolti Arnar kynnti landsliðshópinn Fótbolti Víkingar syrgja stuðningsmann sem lést langt fyrir aldur fram Íslenski boltinn Hópurinn í lokaleikjunum: Kristian snýr aftur og Daníel er með Fótbolti „Mikið af lygum um margt sem hefur gerst á milli mín og stjórans“ Fótbolti Sjáðu upprisu United og öll hin mörkin úr Meistaradeildinni Fótbolti „Ég er ekki Mohamed Salah“ Enski boltinn Fleiri fréttir Rahm myndi sætta sig við sömu refsingar og Koepka fékk Hitti holu í höggi á fyrsta hring ævinnar Eva bætti hvert metið á fætur öðru Frábær árangur Evu sem sló met í Bandaríkjunum Rahm segist vilja rifta við LIV Sjá meira