Birgir Leifur komst ekki í gegnum niðurskurðinn Kolbeinn Tumi Daðason skrifar 8. júní 2012 11:13
Kylfingurinn Birgir Leifur Hafþórsson spilaði annan hringinn á Kärnten Golf Open mótinu í Austurríki á þremur höggum yfir pari og komst ekki í gegnum niðurskurðinn. Skagamaðurinn lauk leik í dag á 75 höggum og var samanlagt á þremur höggum yfir pari eftir hringina tvo. Enn eiga fjölmargir kylfingar eftir að ljúka keppni en líklegt er að spila þurfi á tveimur höggum undir pari til þess að komast áfram. Birgir Leifur lék fyrsta hringinn í gær á pari. Ljóst var að Birgir Leifur þyrfti að spila enn betur í dag til að komast áfram á seinni tvo hringina. Fjórir skollar á fyrstu átta holunum bentu til þess að það tækist ekki sem varð raunin. Birgir Leifur sigraði á fyrsta móti sumarsins í Eimskipsmótaröðinni fyrir tæpum tveimur vikum. Annað mót sumarsins fer fram í Eyjum um helgina.
Golf Mest lesið Kemur Íslendingnum unga til varnar Fótbolti „Við eigum bara svalasta fyrirliða í Evrópu“ Fótbolti „Þetta hefði getað komið fyrir mig“ Fótbolti „Allur heimurinn veit hvað þessir leikmenn gera“ Handbolti Arnar kynnti landsliðshópinn Fótbolti Víkingar syrgja stuðningsmann sem lést langt fyrir aldur fram Íslenski boltinn Hópurinn í lokaleikjunum: Kristian snýr aftur og Daníel er með Fótbolti „Mikið af lygum um margt sem hefur gerst á milli mín og stjórans“ Fótbolti Sjáðu upprisu United og öll hin mörkin úr Meistaradeildinni Fótbolti „Ég er ekki Mohamed Salah“ Enski boltinn Fleiri fréttir Rahm myndi sætta sig við sömu refsingar og Koepka fékk Hitti holu í höggi á fyrsta hring ævinnar Eva bætti hvert metið á fætur öðru Frábær árangur Evu sem sló met í Bandaríkjunum Rahm segist vilja rifta við LIV Sjá meira