Helgi Már og Brynjar komnir heim í KR - eiga bara eftir að skrifa undir Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 2. júlí 2012 15:55 Helgi Már og Brynjar Þór fagna hér þegar Fannar Ólafsson lyftir Íslandsbikarnum vorið 2009. Mynd/Vilhelm
Landsliðsmennirnir Helgi Már Magnússon og Brynjar Þór Björnsson hafa ákveðið að spila með KR í í Domino´s deildinni í körfubolta á næstu leiktíð en þetta staðfesti Böðvar Guðjónsson, formaður körfuknattleiksdeildar KR við Íþróttadeild Vísis og Fréttablaðsins. Böðvar segir að Helgi og Brynjar eigi bara eftir að skrifa undir en að allt annað sé klárt.. Þetta er gríðarlegur liðstyrkur fyrir KR-liðið en báðir þessir leikmenn eru uppaldir KR-ingar og því á leiðinni heim í Vesturbæinn. Helgi Már er 30 ára framherji en Brynjar er 24 ára skotbakvörður. Helgi Már hefur leikið í Svíþjóð undanfarin þrjú tímabil með Solna, Uppsala og 08 Stockholm en Brynjar Þór reyndi fyrir sér með Jämtland í sænsku úrvalsdeildinni á síðasta tímabili. Báðir urðu þeir Íslandsmeistarar með KR þegar þeir spiluðu síðast í íslensku deildinni, Helgi veturinn 2008-89 og Brynjar veturinn 2010-11. Helgi Már var með 13,3 stig og 5,5 fráköst að meðaltali í sænsku deildinni á síðustu leiktíð en hann hitti úr 41,4 prósent þriggja stiga skota sinna og setti alls niður 75 þrista í leikjum 40. Brynjar Þór skoraði 10,4 stig að meðaltali á 25,1 mínútum í leik en hann hitti úr 40,8 prósent þriggja stiga skota sinna.
Dominos-deild karla Mest lesið Viðar Örn leitaði sér aðstoðar við áfengis- og spilafíkn Íslenski boltinn „Þetta er ekki flókið“ Handbolti Spálíkan kippir okkur niður á jörðina fyrir EM Handbolti Rúmlega hálfur milljarður manna sótti um miða á HM Fótbolti Börsungar sluppu fyrir horn Fótbolti „Donald Trump er algjör hálfviti“ Sport „Búið að rífa úr honum stælana, egóið og hrokann“ Handbolti „Ég held að þetta verði bara betra héðan í frá“ Körfubolti „Var í raun bara verið að yfirspila okkur“ Körfubolti Tindastóll - ÍR 101-90 | Stólarnir fóru létt með Breiðhyltinga Körfubolti Fleiri fréttir „Ég held að þetta verði bara betra héðan í frá“ „Hættum að spila okkar leik“ Uppgjörið: Þór Þ. - KR 123-126 | Endurkoma, framlenging og dramatík í Þorlákshöfn „Var í raun bara verið að yfirspila okkur“ Bragi: Er að þroskast mikið sem leikmaður Uppgjör: Ármann - Valur 94-77 | Frábær sigur Ármanns á lánlausum Valsmönnum Uppgjörið: Stjarnan - Keflavík 116-98 | Keflvíkingar kafsigldir í Garðabæ Tindastóll - ÍR 101-90 | Stólarnir fóru létt með Breiðhyltinga Sektaðir um hálfa milljón: Kane og þjálfarar þriggja liða borga mest „Hann hefði bara átt að kyngja þessu, vera stór og halda áfram úti“ Uppgjörið:Grindavík - Njarðvík 89-79| Stórkostlegur seinni hálfleikur hjá Grindavík Haukar stálu sigri af Hamar/Þór Tryggvi lét til sín taka er Bilbao tyllti sér í toppsætið Stjarnan og Valur á sigurbraut í Bónus deildinni Umfjöllun: KR 82-64 Tindastóll | KR-ingar hefndu sín Harden upp fyrir Shaq á stigalistanum: „Mikill heiður“ Extra-leikarnir: „Fannst þessi einkunnagjöf lykta af smá Kópavogsmeðvirkni“ „Hlutir sem ég hefði ekki getað gert ef ég væri að spila“ Hetjuþristur er Keflavík sló út ríkjandi bikarmeistara Vals í spennutrylli KR ekki í teljandi vandræðum með að tryggja sig í undanúrslit Svarar formanni KKÍ: „Eins og að gráta yfir bensínverði á meðan þú ert á Ferrari“ „Mjög hentugt að fá viku til að koma honum inn í hlutina“ „Íþróttaskuld“ eða „íþróttasukk“ Kemi tilþrifin: „Ég skoraði aðeins meira og er myndarlegri“ Helgi Már: Lögðumst bara flatir fyrir þeim Hilmar Smári: Gott að spila aftur í Garðabænum Uppgjörið Stjarnan - Grindavík 100-77 | Aftur fór Stjarnan illa með Grindavík Sunnlendingar sóttu síðasta farseðilinn eftir mikla spennu Pavel hjálpar Grindvíkingum Stólarnir fyrstir í undanúrslit Sjá meira