Rúnar byrjar með látum - fjórir fuglar á fyrstu fimm holunum í dag Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 28. júlí 2012 15:23 Rúnar Arnórsson Mynd/Seth
Keilismaðurinn Rúnar Arnórsson missti efsta sætið eftir annan daginn á Íslandsmótinu í höggleik á Strandarvelli á Hellu í gær en hann var fljótur að breyta því í dag. Rúnar fékk fjóra fugla á fyrstu fimm holunum og er nú kominn fimm höggum undir pari. Rúnar er eins og er með þriggja högga forskot á Þórð Rafn Gissuararson úr GR sem er á -2. Haraldur Franklín Magnús úr GR hefur leikið fyrstu sex holur dagsins á tveimur höggum undir pari eins og Þórður Rafn en Haraldur er nú í þriðja sæti á samtals einu höggi undir pari. Sigmundur Einar Másson úr GKG var efstur eftir gærdaginn en hann hefur tapað þremur höggum á fyrstu sex holum dagsins. Það má fylgjast með skori manna hér en eins er verið að sýna frá mótinu í beinni útsendingu á Stöð 2 Sport og hér á Vísi.
Golf Mest lesið Fangelsisdómur hangir yfir höfði Haaland Fótbolti Ótrúlegasta stoðsending tímabilsins strax í nóvember Körfubolti Russell á ráspól í fyrramálið Formúla 1 Englandsmeistararnir niðurlægðir á heimavelli Enski boltinn Héldu hreinu í fyrsta sinn manni færri megnið af leiknum Fótbolti Hefur Ben Simmons náð botninum? Körfubolti Andy Murray þjálfar erkióvininn Sport Cecilía búin að loka og læsa marki Inter Fótbolti Óli Valur til Blika og sagður sá dýrasti á Íslandi Íslenski boltinn Diljá Ýr á skotskónum og OH Leuven á toppinn Fótbolti Fleiri fréttir McIlroy skaut niður dróna „Orðinn þreyttur á Venna strax á fyrstu holu“ McIlroy kemur „úr felum“ eftir óvenjulegar æfingabúðir Golfstjarnan mætti á upp svið með Trump Kylfingur blindur á auga eftir golfbolta Hundur hljóp inn á og stal golfkúlu Bales Sigurður sótti silfur fyrstur Íslendinga til Makaó: „Rosalega stoltur“ Íslendingur efstur í Arkansas: „Hann er nýnemi!“ Sjá meira