Íslandsmótið í höggleik: Þriðji dagurinn í beinni á Vísi 28. júlí 2012 15:00
Þriðji dagur á Íslandsmótinu í höggleik á Strandarvelli á Hellu er í beinni útsendingu á Stöð 2 Sport og hér á Vísi. Það er mikil spenna í bæði karla- og kvennaflokki og það stefnir því í skemmtilegan dag í blíðunni á Hellu. Sigmundur Einar Másson úr GKG er í efsta sæti í karlaflokki á þremur höggum undir pari eftir tvo hringi en hann er einu höggi á undan Kristni Óskarssyni úr GS sem er annar. Rúnar Arnórsson úr GK er í þriðja sæti á samtals einu höggi yfir pari og Íslandsmeistari síðasta árs, Axel Bóasson úr GK, er í fjórða sæti á pari. Anna Sólveig Snorradóttir úr GK og Valdís Þóra Jónsdóttir úr GL eru í efsta sæti í kvennaflokki. Þær eru báðar samtals á 146 höggum eftir tvo hringi eða sex höggum yfir pari og eru tveimur höggum á undan Eygló Myrru Óskarsdóttur úr GO sem er þriðja. Sigurður Elvar Þórólfsson mun lýsa því sem fer fram á Strandarvelli í dag og honum til aðstoðar verður Þorsteinn Hallgrímsson. Til þess að sjá útsendinguna hér á Vísi þar einungis að smella á hlekkinn hér fyrir ofan: "Horfa á myndskeið með frétt".
Golf Mest lesið Kemur Íslendingnum unga til varnar Fótbolti „Við eigum bara svalasta fyrirliða í Evrópu“ Fótbolti „Þetta hefði getað komið fyrir mig“ Fótbolti „Allur heimurinn veit hvað þessir leikmenn gera“ Handbolti Arnar kynnti landsliðshópinn Fótbolti Víkingar syrgja stuðningsmann sem lést langt fyrir aldur fram Íslenski boltinn Hópurinn í lokaleikjunum: Kristian snýr aftur og Daníel er með Fótbolti „Mikið af lygum um margt sem hefur gerst á milli mín og stjórans“ Fótbolti Sjáðu upprisu United og öll hin mörkin úr Meistaradeildinni Fótbolti „Ég er ekki Mohamed Salah“ Enski boltinn Fleiri fréttir Rahm myndi sætta sig við sömu refsingar og Koepka fékk Hitti holu í höggi á fyrsta hring ævinnar Eva bætti hvert metið á fætur öðru Frábær árangur Evu sem sló met í Bandaríkjunum Rahm segist vilja rifta við LIV Sjá meira