Birgir Leifur á meðal þeirra efstu fyrir lokadaginn í Horsens 17. ágúst 2012 16:36 Birgir Leifur Hafþórsson.
Birgir Leifur Hafþórsson atvinnukylfingur úr GKG er á meðal efstu manna fyrir lokakeppnisdaginn á Áskorendamótaröð Evrópu. Keppt er í Horsens í Danmörku en um er að ræða næst sterkustu atvinnumótaröð Evrópu. Birgir lék á 69 höggum í dag eða -3 og er hann samtals á 8 höggum undir pari. Klas Eriksson frá Svíþjóð er efstur en hann er á 11 höggum undir pari eftir að hafa leikið á nýju vallarmeti á fyrsta keppnisdeginum – 62 höggum. Birgir tapaði aðeins einu höggi í dag en hann fékk skolla (+1) á 17. braut en hann fékk fugl (-1) á 1., 7., og 10. braut. Hann er í 8.-10. sæti en fyrir ofan hann eru tveir kylfingar á -9, fjórir á -10 og Karlssone r efstur á -11. Mótið er hluti af Áskorendamótaröð Evrópu og er þetta þriðja mótið hjá Birgi á þessu tímabili á Áskorendamótaröðinni. Hann endaði í 26. sæti á fyrsta mótinu en komst ekki í gegnum niðurskurðinn á því næsta. Hann mun bæta stigastöðu sína verulega á þessu móti þar sem hann er í góðri stöðu fyrir lokahringinn en Birgir var í 225. sæti peningalistans á Áskorendamótaröðinni fyrir þetta mót.
Golf Mest lesið Vinkonur og liðsfélagar létust á leið heim af æfingu Sport Segir að sigurkarfa Elvars hafi verið ólögleg Körfubolti Skellur fyrir bankabók HSÍ Handbolti Sjáðu Loga Geirs hengja Frakkann og tryggja sér titil Sport Allir sem hylji munninn verði reknir út af Fótbolti Sara og fjölskylda örugg en staðan hræðir Fótbolti Uppgjörið: Litáen - Ísland 99-82 | Hefndu sín á strákunum okkar Körfubolti Glódís vonsvikin: „Þurfum að skoða þetta sem þjóð“ Fótbolti Liverpool rak sérfræðinginn sinn og þá fór allt að gerast Enski boltinn Roy Keane næstum búinn að skemma feril Heimis Fótbolti Fleiri fréttir Logi fékk örn eftir að hafa slegið beint í holu af 76 metra færi Gunnlaugur semur við umboðsskrifstofu Schefflers Atvinnukylfingur féll niður um lyftustokk Rory McIlroy: „Fjögur risamót er alveg nóg“ LIV fær heimslistastig þótt mótaröðin uppfylli ekki skilyrði Sjá meira