Birgir Leifur verður með á Áskorendamóti í Horsens 15. ágúst 2012 16:30 Birgir Leifur Hafþórsson. seth
Birgir Leifur Hafþórsson, atvinnukylfingur úr GKG, verður á meðal keppenda á Áskorendamótaröðinni í golfi sem að þessu sinni fer fram í Horsens í Danmörku. Áskorendamótaröðin er næst sterkasta atvinnumótaröð í Evrópu á eftir Evrópumótaröðinni. Birgir Leifur var á biðlista fyrir mótið en komst inn í keppnishópinn í gær. Kylfingur.is greinir frá. Einn þekktasti kylfingur Dana, Thomas Björn, er gestgjafi mótsins. Birgir Leifur hefur tekið þátt á tveimur mótum á Áskorendamótaröðinni á þessu tímabili. Hann er sem stendurí 225. sæti peningalistans en hann endaði í 26. sæti á fyrsta mótinu sem fram fór í Frakklandi um miðjan maí. Þar lék hann samtals á 9 höggum yfir pari vallar (73-69-72-75). Birgir komst ekki í gegnum niðurskurðinn á móti sem fram fór í Austurríki í byrjun júní. Birgir ætlar sér að taka þátt á úrtökumótunum fyrir PGA mótaröðina í Bandaríkjunum í haust og einnig Evrópumótaröðina þar sem hann var með keppnisrétt árið 2007. Birgir verður því ekki með á Eimskipsmótaröðinni í golfi sem hefst á föstudaginn þar sem að Securitas-mótið hefst. Þar verða leiknar 54 holur á þremur keppnisdögum en um er að ræða fjórða stigamót tímabilsins.
Golf Mest lesið Kemur Íslendingnum unga til varnar Fótbolti „Við eigum bara svalasta fyrirliða í Evrópu“ Fótbolti „Þetta hefði getað komið fyrir mig“ Fótbolti „Allur heimurinn veit hvað þessir leikmenn gera“ Handbolti Arnar kynnti landsliðshópinn Fótbolti Víkingar syrgja stuðningsmann sem lést langt fyrir aldur fram Íslenski boltinn Hópurinn í lokaleikjunum: Kristian snýr aftur og Daníel er með Fótbolti „Mikið af lygum um margt sem hefur gerst á milli mín og stjórans“ Fótbolti Sjáðu upprisu United og öll hin mörkin úr Meistaradeildinni Fótbolti „Ég er ekki Mohamed Salah“ Enski boltinn Fleiri fréttir Rahm myndi sætta sig við sömu refsingar og Koepka fékk Hitti holu í höggi á fyrsta hring ævinnar Eva bætti hvert metið á fætur öðru Frábær árangur Evu sem sló met í Bandaríkjunum Rahm segist vilja rifta við LIV Sjá meira