Sautján stiga tap í Tel Aviv 5. september 2012 19:50 Jakob átti fínan leik í kvöld.
Íslenska körfuknattleikslandsliðið barðist hetjulega gegn Ísrael í Tel Aviv í kvöld en varð að sætta sig við sautján stiga tap, 92-75, að lokum. Íslenska liðið lék hreint út sagt frábærlega í fyrri hálfleik. Byrjaði með miklum látum og náði frumkvæðinu strax. Strákarnir okkar leiddu allt þar til þrjár mínútur voru eftir af hálfleiknum. Þá komst ísraelska liðið yfir í fyrsta skipti í leiknum og leiddi með fjórum stigum, 42-38, í hálfleik. Þrátt fyrir fína tilburði íslenska liðsins hélt bilið að breikka og Ísrael náði tíu stiga forskoti, 59-49, er þriðji leikhluti var rúmlega hálfnaður. Þegar þriðji leikhlutinn var allur var munurinn ellefu stig, 67-56. Þetta bil náði íslenska liðið aldrei að brúa og því fór sem fór. Jakob Örn Sigurðarson var stigahæstur í íslenska liðinu með 20 stig og 6 fráköst. Jón Arnór Stefánsson skoraði 20 stig og þeir Finnur Atli Magnússon og Pavel Ermolinskij skoruðu báðir 10 stig. Íslenska liðið er nú búið að leika átta leiki í sínum riðli og aðeins vinna einn en tapa sjö.
Dominos-deild karla Mest lesið Gunnlaugur æfir með þeim besta í heimi fyrir U.S. Open Golf Grafarþögn í útsendingu Suður-Afríku eftir leik Fótbolti Afhjúpa minningarstein Steina Gísla Íslenski boltinn Phil Mickelson rekinn úr klúbbi fyrir að snerta konu óviðeigandi Golf Lélegasti framherji mótsins strax fundinn Sport Hoppuðu og skríktu af gleði þegar símtalið loksins barst Fótbolti Almar ekki í kassanum Fótbolti Bestu-deildarpar á von á barni saman Íslenski boltinn Ung frjálsíþróttakona lést í fríi með fjölskyldunni Sport Hver er flottasta treyjan á HM? Fótbolti Fleiri fréttir Jesús áfram í Stjörnunni Stuðningsmenn Knicks köstuðu eggi í Wembanyama Elvar og félagar fara 2-0 undir heim til Kanaríeyja Baldur tekur eina stærstu stjörnu Stjörnuliðsins yfir á Álftanes Stólarnir ráða Ísak Wíum Ármann fær sæti í Bónus deildinni og framlengir við Jónínu „Heimskasta körfuboltalið í sögu mannkyns“ Söguleg endurkoma Knicks LeBron James um „Geitina“ í NBA: Enginn betri en ég Wembanyama sleppur við refsingu Kolbrún snýr aftur heim og semur við Tindastól Steinar áfram hjá Ármanni Hamar og Þór hætta samstarfi Martin í úrvalsliðinu Martin spilar til úrslita um þýska meistaratitilinn Elvar og félagar lentu í gininu á Börsungum í kvöld „Ég hef alltaf komið sterkari til baka“ „Ég fer í góðu og þeir skilja mína ákvörðun“ KR blæs í herlúðra: Sara Rún og Emma Sóldís í Vesturbæinn Baulað á Trump í New York Spurs minnka muninn í úrslitaeinvíginu Þrefaldur NBA-meistari með Jordan látinn Ekkert teiti því Trump mætir á völlinn Martin á leið í oddaleik Elvar og félagar hentu meisturum Real Madrid úr leik Tryggvi úr leik þrátt fyrir góða frammistöðu Bræðurnir áfram og meistararnir halda þéttum kjarna Dæmdur í lífstíðarbann frá öllum NBA leikjum Stórveldið svaraði fyrir sig á Tenerife Lokuðu á Martin og héldu sér á lífi Sjá meira